Advertisement
Orgelleikararnir Ágúst Ingi Ágústsson og Eyþór Ingi Jónsson sameina krafta sína og flytja eitt lengsta og magnaðasta orgelverk tónlistarsögunnar, Tabulatur Buch darinnen daẞ Vatter unser eftir þýska tónskáldið Johann Ulrich Steigleder (1593-1635)Steigleder samdi verkið fyrir akkúrat 400 árum síðan og er það eitt magnaðasta tónverk orgelbókmenntanna. Þetta er gríðarlega fjölbreytt tilbrigðaverk í 40 köflum og flytja þeir félagarnir 20 kafla hvor. Sá fyrsti er fantasía, sá síðasti er tokkata og allt þar á milli er í ótrúlega ólíkum stílum, og einhverskonar brú frá ítölsku mótettunni yfir í N- og S-þýska forvera Bach. Þrátt fyrir að allir 40 kaflarnir séu í sömu tóntegund og yfir sama sálmalag verður verkið aldrei leiðingjarnt, meira eins og ótrúlegt ferðalag frá Fantasíunni að Tökkötunni. Engir tveir kaflar verða registeraðir eins og stórkostlega Noack orgel Langholtskirkju mun njóta sín í þessari músík. Verkið tekur rúmlega 1 1/2 tíma í flutningi.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis
Advertisement
Event Venue
Langholtskirkja, Sólheimar 11, 104 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











