Advertisement
Helgarnámskeið í ritlist, alls 10 klukkustundir, þar sem við sökkvum okkur ofan í skrifin í góðum hópi og nærandi umhverfi. Við gerum ýmsar stílæfingar, nýtum okkur kveikjur og stökkpalla, fræðumst um sögusvið og persónusköpun, átök og spennu, og nærum okkur bæði á sál og líkama með samveru og skrifum, góðum mat og ýmiss konar innblæstri.Að námskeiði loknu velja þátttakendur úr einn þeirra texta sem urðu til á námskeiðinu og skila til leiðbeinanda sem veitir á hann endurgjöf. Þá fá þátttakendur sömuleiðis sendar fimm kveikjur til að koma sér áfram í skrifum.
Hádegisverður báða dagana er innifalinn og framreiddur af Atla Ottesen, matreiðslumeistara og eins eiganda veitingastaðarins Hosiló.
Skráning er hafin og fer fram hér: https://forms.gle/sABrPzPxXnCuAb3C7
Athugið að takmörkuð pláss eru í boði!
Umsagnir frá þátttakendum í fyrri námskeiðum:
✨„Námskeiðið var mjög gagnlegt. Fór fram úr mínum björtustu vonum.“
✨ „Ótrúlega vel skipulagt og lærdómsríkt námskeið. Kveikti verulega í skáldafræinu sem beið vökvunar.“
✨ „Ég mætti með opinn huga og ekki mikið af fyrirframgefnum hugmyndum. Fannst námskeiðið mjög gagnlegt og vekjandi. Kom mér eiginlega á óvart hvað mikið gerðist á þessum tveimur dögum.“
Um Sunnu:
Sunna Dís er með M.A.próf í ritlist frá Háskóla Íslands og er sjálfstætt starfandi sem rithöfundur, þýðandi, ritlistarleiðbeinandi og gagnrýnandi. Hún hefur staðið fyrir fjölmörgum ritlistarsmiðjum fyrir fullorðna og börn við góðar undirtektir.
Spurningar?
Sendu mér endilega línu á [email protected] See less
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Dyngjuvegur 8, 104 Reykjavíkurborg, Ísland, Dyngjuvegur 8, 104 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland