Advertisement
Skipulagsdagurinn 2025 fer fram þann 23. október á Grandhótel og í beinu streymi. Skipulagsdagurinn er árleg ráðstefna um skipulagsmál þar sem fjallað er um það sem er efst á baugi í málaflokknum hverju sinni. Sem fyrr verður dagskráin fjölbreytt með erindum framsögufólks úr ólíkum áttum, umræðum og spjalli þar sem tækifæri gefst til að skiptast á hugmyndum.
Áhugasöm, almenningur og öll þau sem með einum eða öðrum hætti koma að skipulagi eru hvött til að koma og vera með, hlýða á erindi og eiga samtal um skipulagsmál.
Á vef Skipulagsstofnunar má bæta viðburðinum í dagatalið og nálgast upplýsingar um dagskrá og skráningu þegar nær dregur.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hotel Reykjavik Grand, Sigtun 28, IS 105 Reykjavik, Iceland, Reykjavík