Advertisement
Verið hjartanlega velkomin á vinnustofu Flóðs & fjöru í Bolholti 4, 2. hæð, fimmtudaginn 23. október kl. 18:30-21:30. Öll velkomin, bæði þau sem kunna að hekla og þau sem eru byrjendur. Ath. námskeiðið er 3 tímar.Samverustundin hefst á hlýjum tebolla og léttum inngangi um töfra handavinnunnar og allt efni verður á staðnum. Hver þátttakandi fær efni í eina tösku, heklunál í stærð 8 og uppskrift.
Verðið er 14.900 kr.
Sköpun eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur innan ramma upphafs og endis og útkoman er þín.
Heilandi samverustund þar sem við fræðumst um það hvaðan macramé kemur, spjöllum um heilunarmátt handavinnunnar og lærum undirstöðu hnúta í macramé svo hægt sé að byrja að skapa, flæða og gera þitt eigið verk, það sem hugurinn, hjartað og hendurnar girnast.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Bolholt 4 2. hæð, 105 Reykjavík, Iceland, Bolholt 4, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets