Advertisement
Í tilefni af hvatningarverkefninu Nægjusamur nóvember bjóða Landvernd, Grænfáninn og Ferðafélag Íslands í skammdegisgöngu, sunnudaginn 24. nóvember í Elliðaárda. 🥾Mæting er við Toppstöðina í Elliðaárdal kl. 10:00 og er áætlað að gangan standi til hádegis.
Þau Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir leiða gönguna fyrir hönd Ferðafélags Íslands og segja okkur sögur af morðum, iðnvæðingu Íslands á 18. öld og sýna okkur útilegumannahelli sem fáir vita um.
Í lok göngunnar ætlum við síðan að setjast niður saman, maula á nesti og spjalla. Við hvetjum göngugarpa til að mæta með heitt á brúsa og smurt með!
Hlökkum til að sjá ykkur! 💚
👉 Kynntu þér Nægjusaman nóvember hér: https://landvernd.is/naegjusamur-november-2024/
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Rafstöðvarvegur 4, 110 Reykjavíkurborg, Ísland, Rafstöðvarvegur 4, 110 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland