Advertisement
Í tilefni Uppskeru- og menningarhátíðar fatlaðs fólks og fötlunarfræða býður Borgarsögusafn upp á sjónlýsingu á Sjóminjasafninu í Reykjavík, fimmtudaginn 20. febrúar kl. 13:30. Sjónlýsing er aðferð til að færa sjónræna upplifun í orð og lýsa fyrir þeim sem ekki geta séð með eigin augum. Í sjónlýsingunni verður fjallað um valda hluti á grunnsýningunni Fiskur & fólk - sjósókn í 150 ár. Sérfræðingar Borgarsögusafns sjá um sjónlýsinguna en hópur starfsfólks safnsins hefur sótt námskeið og hlotið vottun sem sjónlýsendur hjá Audio Description Associates.
Sjónlýsingin er ókeypis og blint og sjónskert fólk er boðið sérstaklega velkomið.
Aðgengi: Safnið er á tveimur hæðum og aðgengi er gott, sérstaklega við inngang Grandagarðsmegin. Lyfta er á milli hæða. Hjálparhundar eru velkomnir. Nánari upplýsingar um aðgengi: https://borgarsogusafn.is/adgengi
Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Grandagarður (1 mín. gangur).
Lýsing á kynningarmynd: Sjóminjasafnið í Reykjavík og báturinn Gullborg við bryggju. Neðst er appelsínugulur flötur með hvítum texta sem segir: Sjónlýsing um Sjóminjasafnið.
///
On the occasion of the Harvest and Cultural Festival of People with Disabilities and Disability Studies, the Reykjavík City Museum is offering a visual presentation in Icelandic at the Reykjavík Maritime Museum in Reykjavík on Thursday, February 20, at 13:30.
The visual presentation describes visual experiences for those who cannot see with their own eyes. It is free of charge, and blind and visually impaired people are especially welcome.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Grandagarður 8, 101 Reykjavík, Iceland, Grandagarður 8, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland