Advertisement
ÍSLENSKAFimmtudaginn 20. Febrúar leikur latínkvartett Tómasar R. Einarssonar í Djúpinu, í kjallara Hornsins við Hafnarstræti. Með honum spila saxófónleikarinn Óskar Guðjónsson, gítarleikarinn Ómar Guðjónsson og slagverksleikarinn Kristófer Rodríguez Svönuson. Kontrabassaleikarinn og tónskáldið Tómas hefur gefið út á þriðja tug platna með eigin tónlist. Eftir að hafa spilað djass í tvo áratugi varð latíntónlistin aðalviðfangsefni hans um langa hríð og hljóðritaði hann slíkar plötur jafnt í Reykjavík og í Havana á Kúbu. Hann gaf út endurminningar sínar 2023, undir nafninu Gangandi bassi. Síðasta plata hans er Bolero (2024), með Óskari Guðjónssyni.
- -
Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 vorið 2025. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 3.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.
ENGLISH
The double-bass player and composer Tómas R. Einarsson has released more than 20 records with his own music. He concentrated on acoustic jazz from 1980 to 2000, but then the Latin jazz took over and he has recorded his Latin music equally in Havana, Cuba, as well as in Reykjavik. His autobiograpy, Walking bass – memoirs of a jazz musician, was released in 2023. His last record is Bolero (2024), with saxophonist Óskar Guðjónsson.
- -
The Jazz í Djúpinu concert series takes place on Thursday nights at 8:30 PM during the autumn of 2025. Djúpið is the basement of the restaurant Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). The entrance to Djúpið is at the back, facing Bæjarins beztu. The entrance to the basement opens at 8:00 PM. Ticket price is 3.000 ISK, tickets are sold at the entrance and in advance. The concert series is organised by the Jazz Department of FÍH and is supported by the Cultural Fund of FÍH and the City of Reykjavík. Please note that there is no wheelchair access at the venue.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Veitingahúsið Hornið, Hafnarstræti 15, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets