Advertisement
Stórtónleikar með Söngleikjastælum og Viðlagi!Söngleikjastælar enda aðra tónleikaröð sína með stórtónleikum með því að bjóða upp á stórtónleika ásamt Viðlagi.
Viðlag hefur fyrir löngu stimplað sig inn sem einstakur söngleikjakór í íslenskum sviðslistum. Kórinn hefur haldið metnaðarfulla kórtónleika og leiksýningar frá stofnun hans
árið 2021. Þess má geta að frumsamið leikverk kórsins “Við erum hér” sló í gegn í Tjarnarbíó síðasta vetur.
Sem fyrr eru það Bjarni Snæbjörns og Sigga Eyrún sem bjóða upp á Söngleikjastælar og er tónleikaröðin óður til söngleikjanna þar sem ný og gömul söngleikjatónlist fær að njóta sín í meðförum reyndra söng-leikara ásamt hljómsveit.
Hljómsveitina skipa
Karl Olgeirsson tónlistarstjóri á píanó
Andri Ólafsson á bassa
Diddi Guðnason á trommur
Stjórnandi Viðlags er Axel Ingi Árnason
Advertisement
Event Venue
Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Iceland, Hamraborg 6, 200 Kópavogsbær, Ísland, Kopavogur, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.





