Advertisement
Reykjavíkurþing Varðar fer fram dagana 21. og 22. nóvember nk. Á Reykjavíkurþinginu verða línurnar lagðar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026, en þingið er opið öllum sjálfstæðismönnum í Reykjavík. Skráning á Reykjavíkurþingið er hafin, en greiðsla jafngildir skráningu. Einnig verður hægt að skrá sig á staðnum eða í Valhöll á opnunartíma skrifstofu Sjálfstæðisflokksins.
Nánari upplýsingar um skráningu er að finna á vef Sjálfstæðisflokksins, xd.is.
Dagskrá Reykjavíkurþings
Föstudagur - 21. nóvember
15:00 - 17:00 - Afhending fundargagna
17:00 - 19:00 - Samhristingur í aðdraganda Reykjavíkurþings
Athugið - Möguleiki er á því að stakar málefnanefndir boði til opinna funda á fimmtudegi og/eða föstudagskvöld, ef þurfa þykir. Slíkir fundir verða auglýstir í upphafi næstu viku.
Laugardagur - 22. nóvember
9:30-10:00 - Afhending fundargagna
10:00 - Setning Reykjavíkurþings, Albert Guðmundsson, formaður Varðar
10:15-12:30 - Málefnastarf í málefnanefndum Reykjavíkurþings
12:30 -13:30 - Hádegisverður
13:30-15:30 - Afgreiðsla ályktana málefnanefnda
15:45-17:00 - Pallborðsumræður og ávörp
17:00-17:45 - Afgreiðsla stjórnmálaályktunar
17:45-18:00 - Þingslit
Að þingi loknu: Reykjavíkurhóf á vegum Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík (staðsetning og dagskrá nánar auglýst síðar)
Takið dagana frá og fjölmennum á Reykjavíkurþing!
Advertisement
Event Venue
Sjálfstæðisflokkurinn, Valhöll, Háaleitisbraut 1, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.