Advertisement
Fyrir langalöngu síðan, í landi langt, langt í burtu… Spáni.Óperan Rakarinn í Sevilla er eftir ítalska tónskáldið Rossini, byggir á sögu franska leikskáldsins Beaumarchais og fjallar um Spánverja. Í meðförum Óðs verður hún flutt á íslensku, í glænýrri þýðingu hópsins, svo skaft þessa landfræðilega og menningarlega suðupotts lengist enn frekar. Þessi fyrsti hluti sögunnar um Figaro, Almaviva, Rosinu og Bartolo er ein ástsælasta gamanópera sögunnar en reyndustu fræðingar um verkið mega þó búast við ýmsu óvæntu í þessu nýjasta útspili Óðs, þar sem rakarakvartett, rússneskir rógberar og önnur stef á villigötum koma við sögu.
Óður er Listhópur Reykjavíkur 2024, hefur unnið til Grímuverðlauna fyrir starf sitt og verið tilnefndur sem flytjandi ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Frumraun hópsins leit dagsins ljós í október 2021 í Þjóðleikhúskjallaranum og hefur hópurinn síðan sýnt yfir 40 sýningar af þremur uppfærslum sínum þar; Ástardrykknum, Don Pasquale og Póst-Jóni.
Rakarinn í Sevilla er fyrsta sýning hópsins í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll. Verkefnið er styrkt af Sviðslistasjóði.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Iceland Parliament Hotel, Thorvaldsensstræti 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets