Advertisement
Lífland boðar til bændafunda dagana 2.-5. desember undir yfirskriftinni „Kálfar, kraftmikið vothey og kjarngott fóður“.Fyrsti fundurinn verður í verslun Líflands í Borgarnesi mánudaginn 2. desember kl. 20:00
Horft verður til undirstöðuatriða mjólkurframleiðslunnar og mun Hans Wansink sérfræðingur frá Trouw Nutrition fjalla um kálfaeldi og það hvernig fóðrun og atlæti hefur áhrif á framleiðni og endingu mjólkurkúa. Með honum í för verður Gerton Huisman sem mörgum er að góðu kunnur. Þvínæst verður fjallað um heyverkun með áherslu á hvernig gott gróffóður og vothey verður til og hvaða hlutverk það leikur í afurðaseminni og munu Luco Zantinge og Martijn Kirghof frá Visscher Holland flytja þetta erindi. Að lokum munu Gabríela María Reginsdóttir og Ásdís Ólafsdóttir fóðurráðgjafar hjá Líflandi fjalla um niðurstöður heysýna og kjarnfóðurúrval Líflands.
Dagskrá fundarins:
Fóðrun ungkálfa á mjólkurskeiði
Hans Wansink, Trouw Nutrition
-Stutt hlé
Fáðu það mesta út úr votheyinu
Luco Zantinge og Martijn Kirghof, Visscher Holland
Heysýni og kjarnfóður - Hvað á að gefa í vetur?
Ásdís Ólafsdóttir og Gabríela María Reginsdóttir, Líflandi
Fundirnir standa í um 2 klst.
Léttar veitingar í boði.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Lífland Borgarnesi, Digranesgata 6, 310 Borgarbyggð, Ísland,Borgarnes, Reykjavík, Iceland