Advertisement
Hefur þú áhuga á íþróttum?Ert þú á aldrinum 15 – 25 ára og býrð á Vesturlandi?
Ef já, þá er þér boðið á Raddir ungs fólks - samtal við ráðafólk, miðvikudaginn 8. apríl kl. 13:00 - 15:00 á Hótel Vesturlandi í Borgarnesi
Skráning: https://forms.gle/2dxTnRVN7uUFrJQT8
Hvar: Hótel Vesturland í Borgarnesi
Hvenær: miðvikudaginn 8. apríl kl. 13:00 - 15:00
Fyrir hverja: Öll þau ungmenni á aldrinum 15 – 25 ára sem hafa áhuga á íþróttum, hafa æft íþróttir, hafa hætt að æfa íþróttir og eru enn að æfa íþróttir.
Allir þrír framhaldsskólar Vesturlands (FSN, FVA og MB) gefa nemendum leyfi úr tímum til að taka þátt í viðburðinum og verður akstursstyrkur í boði fyrir þau sem hópa sig saman í bíla og koma lengra að.
Veitingar verða í boði!
Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsfyrirliði í handknattleik, heimspekingur og meistaranemi í íþróttasálfræði heldur erindi á fundinum. Því næst er ungu fólki og ráðafólki úr íþróttahreyfingunni og sveitarfélögum skipt niður á borð og þar fara fram umræður sem þarf að taka þátt í.
Fundurinn snýst um að ungt fólk geti komið sínum málum á framfæri við ráðafólk innan íþróttahreyfingarinnar og fulltrúum sveitafélaga í landshlutanum. Hvernig getum við gert gott íþróttastarf enn betra?
Ráðafólk getur skráð sig til þátttöku með því að senda tölvupóst á netfangið: [email protected]
Fundurinn er hluti af landsverkefni ÍSÍ, UMFÍ, Svæðisstöðva íþróttahéraða og Ungmennaráðs UMFÍ og miðar að því að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks en sporna líka gegn brottfalli úr skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi. Niðurstöður fundanna verða meðal annars nýttar í heildstærði stefnumótun íþróttahreyfingarinnar, sem nú stendur yfir.
Advertisement
Event Venue
Hótel Vesturland, Borgarbraut 59, 310 Borgarbyggð, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











