Advertisement
Rót er nýtt, ljóðrænt brúðuleikrit fyrir fjölskyldur um rætur, samkennd og sögurnar sem gera okkur heil.Það er sumarið 1995 og ungur drengur í litlum íslenskum bæ er að fara að hitta ömmu sína, Abuelu sína, í fyrsta sinn. Hún kemur frá Paragvæ eins og stormsveipur litadýrðar og söngs, með ferðatösku fulla af sögum, minningum og smá göldrum líka.
Með komu hennar fer hverdagurinn að breytast: eldhús breytast í draumalandslag og fuglarnir flytja okkur raddir frá fjarlægum stöðum.
Sagan er sögð með augum drengsins og mannsins sem hann verður. Rót færist á milli fortíðar og nútíðar, Íslands og Suður-Ameríku, raunveruleika og ímyndunarafls.
Með söng, brúðuleik og mögnuðu sjónleikhúsi kannar leikritið hvað það þýðir að alast upp milli heima og bera innra með sér ólíkar sögur. Það er mikilvægt að segja þessar sögur - líka þær erfiðu.
Með hlátri, undran og nærgætinni blíðu fagnar Rót fegurð fjölskyldunnar og dirfskunni sem þarf til að standa með því sem við erum.
Þessi áhrifamikla og sjónræna sýning er búin til af alþjóðlegu teymi listamanna frá Paragvæ, Slóvakíu, Bandaríkjunum, Tékklandi, Dóminíska lýðveldinu, Japan, Bretlandi og öllum hornum Íslands. Hún minnir okkur á að sögur okkar, hversu smáar sem þær eru, eru það sem tengir okkur saman.
Hjartnæm og hugmyndarík upplifun fyrir fjölskyldur og unga áhorfendur. Mælt með fyrir 8 ára og eldri.
Advertisement
Event Venue
Samkomuhúsið Akureyri, Hafnarstræti 57, 600 Akureyrarbær, Ísland, Akureyri, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.









