Advertisement
QIGONG TIL HEILUNAR4 VIKUR
Kennt þrið og fimmt kl. 7.30 (70 mín)
Kennarar Ólafur Guðmundsson og Hafdís Ólafsdóttir
TILBOÐ 18.900 - innifalið opið kort
Qigong iðkun er aðgengileg og áhrifrík. Iðkunin tengir saman orku náttúrunnar og orku líkamans sem gefur djúpa innri ró og hluttekningu í lífinu.
Það er áhrifrík að byrja daginn á Qigong, með hægum og aðgengilegum hreyfingum eflum við líkamsvitund og hlúum að stoðkerfi, líffærum, taugakerfi, huga og orkusviði líkamans. Unnið er með Zhineng Qigong æfingar og stutt Qigong hreyfingakerfi. Lögð er áhersla á núvitund í standandi Qigong stöðum og Taijiquan hreyfingum.
Qigong og Taijiquan er aldagömul kínversk hreyfilist sem byggir á Taoisma og yin og yang og hvernig öll orka líkamans og alls heimsins er í stanslausu flæði. Qigong og Taijiquan iðkun eykur innri ró og eykur næmi á skynjun líkamans.
QIGONG
eykur orkuflæði
gefur næma líkamsvitund
nærir líffærin
styrkir stoðkerfið
gefur innri ró
skapar jafnvægi
samþættir huga, hjarta og líkama
eflir einbeitingu
jarðtengir
Öll með opið kort mælum með yoga nidra & tónheilun 8 tímar á viku auk þess fjölbreyttir yogatímar.
Ólafur Guðmundsson er yogakennari, leikari og leiklistarkennari. Hann er með MA gráðu í Applied Drama from Lundúnaháskóla og hefur síðan 2003 unnið sem leiklistarkennari í fullu starfi í grunnskólum, framhaldsskólum og verið með sjálfstæð námskeið í leiklist og sjálfstyrkingu. Hann lauk yogakennaranámi frá Yogavin í mars 2020 og hefur kennt yoga hjá Yogavin síðan. Ólafur fór á sitt fyrsta yoganámskeið hjá Kripalu yoga center árið 1993 og hefur stundað yoga með hléum síðan. Hann hefur einnig stundað Taiji reglulega síðan 1999 og hefur sótt fjölda námskeiða í taiji og núvitund í gegnum árin, einkum hjá Kinthissa og master Chen Xiaowang. Undanfarin tvö ár hefur hann kynnt sér og lagt stund á Zhineng Qigong sem er Qigong æfingakerfi sem þróað var af Dr. Pang Ming, kínverskum Qigong meistara. Ólafur hefur einnig stundað hugleiðslu reglulega síðan 2010 og hefur sótt kyrrðarvökur hér á landi og á Holy Isle í Skotlandi. Ólafur leggur áherslu á jarðtengingu og núvitund í sinni iðkun og kennslu. Í sinni taiji kennslu kennir hann Chen taiji form og grunnæfingar sem byggja upp færni í taiji og næmi fyrir orkuflæði líkamans og líkamsvitund.
Hafdís Ólafsdóttir er með BS gráðu í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslandi og diploma í Basic Body Awareness Methodology frá Bergen University Collage. Hún hefur iðkað taiji – Chen Style til margra ára undir leiðsögn Kinthissa. Seinustu 4 árin hefur hún lagt stund á Zhineng Qigong hjá Xie Chuan. Hafdís hefur sótt námskeið í qigong og taiji bæði hér heima og erlendis og kennt taiji um árabil. Hafdís hefur trú á að taiji og qigong stuðli að bættri heilsu og sátt við okkur sjálf og að stunda taiji og qigong hreyfingar í hópi eykur orkuflæði og samkennd.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Yogavin, Grensásvegur 16, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.








