Advertisement
Þann 27. september næstkomandi snúa Pálmi Gunnarsson og Hipsumhaps bökum saman á tónleikum í Norðurljósasal Hörpu. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni …& Hipsumhaps þar sem kynslóðir sameinast í tónum og tali.„Árið 1996 kom stórlaxinn Pálmi Gunnarsson í veiðihús við Selá á Vopnafirði. Þessi sanni alþýðumaður sá sér fært milli holla að skutla syni kokksins í sund. Nú, tæpum 30 árum síðar, stíga þeir saman á svið. Stórlaxinn og sonur kokksins. Við höfum sett saman frábæran lagalista með lögum úr smiðju hvors annars sem mun ekki skilja neinn ósnortinn. Allt í þágu gleðinnar.“
- Fannsi, Hipsumhaps
Hljómsveit kvöldsins skipa:
Pálmi Gunnarsson – söngur og bassi
Fannar Ingi Friðþjófsson – söngur og gítar
Bergur Einar Dagbjartsson – trommur
Kristinn Þór Óskarsson – gítar
Ólafur Alexander Ólafsson – bassi og gítar
Tómas Jónsson – hljómborð
Tumi Árnason – saxófónn
Ekki láta þessa kvöldstund framhjá þér fara. Tryggðu þér miða strax í dag.
Hlekkur á miðasölu:
https://www.harpa.is/vidburdir/19855
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets