Advertisement
Platan Painted Blue hefur lengi verið í smíðum, en lítur loks dagsins ljós í nóvember. Platan rennir bláum pennslum yfir hverfulleika, húmor og leit að friði í gegnum þjóðlagaform. Röddin og gítarinn eru í forgrunni en þó koma fjölmargir vinir Péturs fram á plötunni. Má þar nefna Emilíönu Torrini, Tinu Dickow, Helga Jónsson, Marketu Irglova, Pieter Theuns og Magnús Trygvason Elíassen ásamt mörgum öðrum frábærum listamönnum.Í tilefni útgáfunnar verður Pétur Ben með tónleika í Iðnó þann 29. nóvember klukkan 20.
Sérstakir gestir verða Emilíana Torrini, Tina Dickow og Helgi Jónsson.
Þetta er einstakt tækifæri til að sjá og heyra þessar raddir blanda litum og mála himingeiminn.
Eitt af lögum plötunnar, The Great Big Warehouse in the Sky, var tilnefnt sem lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2025. Pétur er þekktur fyrir ófyrirsjáanlegar og fjölbreyttar tónleikaupplifanir þar sem hann fléttar saman ólíkum lagasmíðum sínum við óvæntar og skemmtilegar ábreiður.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
IÐNÓ, Vonarstræti 3,Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.










