Advertisement
Hvað: jafningjastuðningurHvar: Mannréttindahúsinu Sigtúni 42
Fundarrými: Djúpið
Hvenær: Mánudaginn 29. september kl. 19:30-21:30.
---
Tabú, feminísk fötlunarhreyfing, hefur haldið úti jafningjastuðningi og jafningjanámskeiðum fyrir fatlaðar konur og kvár í rúman áratug. Í vetur verða mánaðarlegir opnir fundir fyrir þennan hóp.
Jafningjaráðgjöf er einn af hornsteinum hugmyndafræði mannréttindabaráttu fatlaðs fólks um sjálfstætt líf og er álitin ein mikilvægasta leiðin til valdeflingar og sjálfræðis fyrir fatlað fólk. Þar er fatlað fólk álitið sérfræðingar í eigin lífi og með dýrmæta þekkingu á þeim hindrunum sem við mætum og hvernig við tæklum þær.
Jafningjastuðningur kemur ekki staðin fyrir sálfræðiaðstoð en getur verið góð byrjun og/eða sjálfsvinna samhliða henni, sem og ein og sér.
Hver fundur mun hafa ákveðið viðfangsefni og umræðum verður stýrt af umsjónaraðila sem hefur reynslu af því að leiða jafningjahópa og er fötluð sjálf.
Fyrsti fundurinn fer fram 29. september kl. 19:30-21:30. Ef óskað er eftir táknmálstúlki vinsamlega hafið samband á [email protected] með eins góðum fyrirvara og mögulegt er. Ef það er vöntun á akstri má hafa samband á sama netfang og við reddum málunum. Drykkir og nasl verður í boði. Viðburðurinn er haldinn í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42. Greinagóða aðgengislýsingu má finna hér: https://mannrettindahusid.is/adgengi-mannrettindahusid/
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Mannréttindahúsið, Sigtún 42,Reykjavík, Iceland