Advertisement
Bíó Paradís og Kvikmyndasafn Íslands sýna allar íslensku kvikmyndirnar sem teknar voru fyrir í þáttunum Stjörnubíó sem sýndir voru á RUV. Daníel og Þór sigla undir fölsku flaggi og ráða sig í vinnu hjá stærsta fiskvinnslufyrirtækinu í Eyjum, þar sem þeir kynnast Víglundi verkstjóra („Þú ert kallaður „Lundi“ er það ekki?“), bónusvíkingnum Axel, ungfrú Snæfells- og Hnappadalssýslu, Maríu Lundadóttur og skipstjóranum hjátrúarfulla og fjölmörgum öðrum ógleymanlegum persónum.
Eyjamúsíkin dunar í myndinni í stórkostlegum flutningi Bjarkar Guðmundsdóttur og fleiri tónlistarmanna. Í Nýju lífi skutust þeir Þór og Danni upp á stjörnuhiminn íslenskrar kvikmyndasögu og urðu góðkunningjar allrar þjóðarinnar.
Nýtt Líf er sýnd í nýrri stafrænni útgáfu í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands á sérstakri partísýningu laugardaginn 25. apríl kl 19:00.
Advertisement
Event Venue
Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland, Hverfisgata 54, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











