Advertisement
Sunnudagur 23. ágúst
Kl. 17 Orgeltónleikar í Hallgrímskirkju með Christian Barthen
Við hvetjum fólk eindregið til að hefja þessa námskeiðisdaga á því að mæta á tónleika Christian Barthen. Aðgangur er ókeypis fyrir félagsfólk í FÍO
Kl. 20-22 Raddþjálfun kóra I (nánari lýsing er hér fyrir neðan).
Umsjón Laufey Helga Geirsdóttir. Háteigskirkja.
Mánudagur 24. ágúst
Kl. 10-14 Masterclass með Christian Barthen í Hallgrímskirkju https://www.christianbarthen.com/ Hámarksfjöldi virkra þátttakenda er 8 og þarf að láta vita um efnisval í síðasta lagi 12. ágúst.
Kl. 16-18.30 Raddþjálfun kóra II. Umsjón Laufey Helga Geirsdóttir, Magnús Ragnarsson og Arngerður María. Háteigskirkja.
Þriðjudagur 25. ágúst
Kl. 9-11.30 - Raddþjálfun kóra III. Umsjón Laufey Helga Geirsdóttir, Magnús Ragnarsson og Arngerður María. Háteigskirkja.
Kl. 11.30 - Hádegishlé
Kl. 12.30-13.30 - Kynning á nýju efni fyrir kóra: “Jólalög - nýtt efni ásamt útsetningum á eldra efni”. Umsjón Magnús Ragnarsson og Arngerður María. Háteigskirkja.
Boðið verður upp á 3 samsetningar:
PAKKI I - ORGEL MASTERCLASS
Almennt verð kr. 20.000,-
Félagsmenn FÍO kr. 10.000,-
Nemendur Tónskólans kr. 0
PAKKI II - RADDÞJÁLFUN KÓRA I, II og III
Kr. 12.000,-
Ath. þeir nemendur Tónskólans sem taka námskeiðið sem hluta af náminu greiða ekki
PAKKI III - MASTERCLASS OG RADDÞJÁLFUN KÓRA
Almennt verð kr. 30.000,-
Félagsmenn FÍO kr. 20.000,-
Síðasti dagskrárliður; Kynning á nýju efni fyrir kóra, verður opinn öllum.
Skráningar fara fram með því að senda póst á [email protected] fyrir 1. ágúst næstkomandi.
Þar skal koma fram:
Nafn - kennitala - Pakki I, II eða III - hvort viðkomandi er nemandi skólans, eða í FÍO
Síðast en ekki síst þurfa þeir sem hafa hug á að vera virkir þátttakendur, þeas að spila, á masterclass að taka það fram. Hámarkið er 8 spilarar og hér gildir fyrstur kemur, fyrstur fær.
RADDÞJÁLFUN KÓRA - námskeiðslýsing
Fyrsti hlutinn verður í formi fyrirlestrar þar sem leitast verður við að svara spurningum varðandi samhljóm, legato-söng, tengsl textameðferðar, framburðar og kórhljóms. Spennu, spennulosun og líkamsstöðu t.d. varðandi bak og kjálka/höku. Fjallað um hugsanlegar ástæður þess að fólk syngur undir tóni eða raddir sem skera sig úr (e.t.v. sjálfskipaðar „leiðandi raddir“) og hvernig hægt sé að bregðast við því og í tengslum við það: muninn á hlustun annars vegar og heyrn hins vegar. Auk þess fjallað um hið sívinsæla fyrirbrigði „öndun“.
Í öðrum hluta verður komið að þessum sömu hlutum í „praxís“, hvaða æfingar eru hentugar og þær æfðar/sungnar og rætt um hver sé tilgangur (upphitunar-) æfinga. Fjallað verður um hugmyndir og æfingar varðandi athygli kórfólks á æfingu og hvernig við fáum fólk til að „vera á staðnum“ á meðan æfingu stendur og góðar leiðir fyrir kórstjóra að halda athygli á æfingum. Hvenær er þörf á uppbroti á kóræfingu, t.d. með öðruvísi stöðu kórsins, líkamsæfingum og þá hvaða? Jafnvel létta leiki til að hrista upp í fólki? Í lok dags fáum við kór í heimsókn til að vinna með í tengslum við áðurnefnd atriði.
Þriðji og síðasti hluti: samantekt, spurningar, vangaveltur ofl.
Advertisement
Event Venue
Háteigskirkja, Háteigsvegur 29, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.






