Advertisement
MATA Healing Process og Hljóðferðalag með Berglindi og MörtuSameinum krafta okkar í tveggja tíma endurnærandi ferðalagi hugar og líkama.
Við vinnum með lífsorkuna í samhljómi við orku skógarins og hljóðferðalagið sem leiðir þig inn í djúpa slökun og tengingu við sjálfa(n) þig.
Tónheilun
Tónheilun er heildræn iðkun sem nýtir lækningamátt hljóðsins, fornrar visku og nútímavísinda.
Með samhljóma tónum, titringi og tíðni er jafnvægi endurheimt, streita leyst og vellíðan aukin.
Tónarnir vinna djúpt á líkama, huga og sál — þar sem allt er orka.
MATA Healing Process
MATA er orka sem tengir okkur við kraft skógarins og þá heilun sem hann hefur að bjóða hverju sinni.
Unnið er með lifandi medicine orku skógarins og heilunaraðferðir sem styðja við náttúrulegt orkuflæði líkamans.
Við hreinsum orku, jarðtengjum og vöxum — í tengingu við hjarta náttúrunnar og ljósið innra með okkur.
Orkukerfið opnast og styrkist, spennur og kvíði leysast upp og tilfinningalosun getur átt sér stað.
Lífsorkan — grunnuppspretta alls lífs — fær að flæða frjálslega og koma jafnvægi á líkama og huga.
Það eina sem þú þarft að gera er að mæta með opinn huga og sleppa tökunum.
Í tímanum liggur þú á jógadýnu og færð mjúkar snertingar á ákveðna punkta á líkamanum, svo sem á höfuð, enni, bringu, fætur og lófa.
Orkan flæðir þar sem hennar er þörf, og upplifunin er einstök fyrir hvern og einn.
Sumir upplifa djúpa slökun, hita, kulda eða strauma í líkamanum.
Ósjálfráðar hreyfingar, minningar, sýnir eða tilfinningalosun geta komið fram — allt er þetta eðlilegt þegar lífsorkan þín vaknar til lífs.
Áhrif tímans geta fylgt þér áfram.
Algengir ávinningar eru:
🜂 betri svefn
🜃 dýpri tenging við innsæið
🜁 meiri gleði og jafnvægi
🜄 vellíðan og ánægjulegri samskipti
Rætur skógarins veita djúpa jarðtengingu inn í amstur dagsins, og með reglulegri iðkun MATA healing process getur þú fundið þann frið og styrk sem skógurinn geymir.
⸻
Verð: 11.000 kr.
Tryggðu þér sæti: Gerðu going á viðburðinn og greiðtu í gegnum miðasíðuna.
Við erum hér fyrir þig 🌿
Haux Haux
Berglind & Marta Dröfn
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Yogavin, Grensásvegur 16, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











