Advertisement
Með hækkandi sól koma Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Brynja Hjálmsdóttir og Magnús Sigurðsson og ræða um skáldskapinn og þýðingar. Sérstök áhersla verður lögð á bækurnar Heyrnarlaust lýðveldi, Skartgripaskrínið mitt og Berhöfða líf sem þýðendur þeirra lesa upp úr. Við forvitnumst um skáldskapinn og þýðingarvinnuna auk þess sem við njótum léttra veitinga. Aðalsteinn þýddi Heyrnarlaust lýðveldi eftir Ilya Kaminsky en það er nýstárleg og áhrifamikil ljóðabók sem fjallar um atburði í ónefndum bæ á stríðstímum. Þegar innrásarlið drepur heyrnarlausan dreng, verður byssuskotið það síðasta sem bæjarbúar heyra – allir missa heyrnina, en angist, reiði, skelfing og uppgjöf eru látin í ljós á táknmáli.
Brynja þýddi Skartgripaskrínið mitt eftir Ursula Andkjær Olsen. Bókin geymir ljóð um líffræðilegar, efnahagslegar og tilfinningalegar hringrásir, um að halda áfram lífinu og ganga í gegnum tíðahvörf, um sársauka og alsælu, ást og sorg, um stjórnleysi og Miklahvell.
Magnús þýddi ljóð eftir Emily Dickinson í bókinni Berhöfða líf. Bókin er heilsteypt úrval af ljóðum hennar ásamt ítarlegum inngangi þýðanda sem hefur rannsakað ljóðlist Dickinson um árabil. Dregin er upp mynd af róttæku skáldi sem gekk gegn viðteknum samfélagsvenjum; af konu sem hlýddi kröfum eigin tilfinningalífs í trássi við ýmsa ríkjandi siði og þjónaði köllun sinni af dirfsku. Bókin hlaut tilnefningu til Íslensku þýðingaverðlaunanna 2021.
Öll velkomin!
Viðburðurinn á heimsíðu: https://borgarbokasafn.is/vidburdir/bokmenntir/ljodakaffi-hvernig-thydum-vid-ljod
Nánari upplýsingar
Hólmfríður María Bjarnardóttir, sérfræðingur
[email protected] | 411 6202
Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur
[email protected] | 411 6204
---
Poetry café | How Do You Translate Poetry?
We celebrate the rising sun with a poetry reading from three Icelandic poets and translators. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Brynja Hjálmsdóttir, and Magnús Sigurðsson will read and discuss poetry translations. Light refreshments while the event takes place.
Everyone is welcome but the event will be in Icelandic.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Borgarbókasafnið Kringunni, Kringlan 4, 103 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland