Ljósin tendruð á Hamborgartrénu

Sat, 29 Nov, 2025 at 05:00 pm

Miðbakki - Reykjavíkurhöfn | Reykjavík

Landsbankinn
Publisher/HostLandsbankinn
Lj\u00f3sin tendru\u00f0 \u00e1 Hamborgartr\u00e9nu
Advertisement
Ljósin verða tendruð á 60 ára afmæli Hamborgartrésins þann 29. nóvember kl. 17.00 við hátíðlega athöfn á Miðbakka við Reykjavíkurhöfn þar sem Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur jólalög við jólatréð.
Að athöfn lokinni býðst gestum á Miðbakka að þiggja fiskisúpu í boði Brims í Landsbankanum við Reykjastræti 6. Jólasveinar og harmonikkuleikari skemmta gestum og leika jólalög.
Viðburðurinn er í boði Landsbankans, Faxaflóahafna, Brims, Hörpu, Hafnartorgs, Sjómannadagsráðsins og Þýsk-íslenska viðskiptaráðsins.
? DAGSKRÁ
- Jólakveðja frá Faxaflóahöfnum
- Sendiherra Þýskalands, Clarissa Duvigneau, tendrar ljósin á Hamborgartrénu
- Jólasveinar sigla inn í gömlu höfnina á Magna og leggjast að Miðbakkanum og leiða gesti að fiskisúpukötlunum í Landsbankanum.
❄️ SAGA GJAFMILDI OG ÞAKKLÆTIS
Íslenskir sjómenn sem lögðu að í Hamborg eftir seinna stríð elduðu fiskisúpu handa svöngum krökkum á meðan verið var að landa úr togurunum þeirra. Sem þakklætisvott hófu hafnaryfirvöld í Hamborg árið 1965 að senda jólatré til Reykjavíkurhafnar og stendur Hamborgartréð við höfnina yfir hátíðarnar.
? Vegna umhverfissjónarmiða er ekki lengur siglt með grenitréð frá Þýskalandi og hafa Faxaflóahafnir þess vegna keypt tré frá Skógræktinni í seinni tíð.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Advertisement

Event Venue

Miðbakki - Reykjavíkurhöfn, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you: