Lestrarhátíð | Sögustund og furðufiskasmiðja

Sun Nov 23 2025 at 01:00 pm to 03:00 pm

Borgarbókasafnið Árbæ | Reykjavík

Borgarb\u00f3kasafni\u00f0
Publisher/HostBorgarbókasafnið
Lestrarh\u00e1t\u00ed\u00f0 | S\u00f6gustund og fur\u00f0ufiskasmi\u00f0ja
Advertisement
*English below
Ragnheiður Gestsdóttir (dóttir Rúnu) les og stýrir furðufiskasmiðju úr Rauða fiskinum eftir Rúnu í tilefni endurútgáfu á þessari klassísku barnabók.
Rauði fiskurinn eftir Rúnu, Sigrúnu Guðjónsdóttur, kom fyrst út árið 1972. Í sögunni renna texti og myndir áreynslulaust saman í eina heild sem er í senn spennandi og hrífandi. Hér gefst nýjum kynslóðum tækifæri til að kynnast þessari sígildu perlu íslenskra barnabókmennta. Á löngum og fjölbreyttum ferli hefur myndsköpun Rúnu fundið sér farveg innan leirlistar, bókskreytinga, málverks og hönnunar. Hún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar í gegnum tíðina, svo sem Fálkaorðuna og Íslensku hönnunarverðlaunin.
Boðið verður upp á kakó og smákökur.
Vikuna 22. - 29. nóvember, í aðdraganda aðventu, heldur Borgarbókasafnið lestrarhátíð fyrir börn og fjölskyldur í öllum átta bókasöfnum borgarinnar. Lögð er áhersla er á að skapa notalegar stundir fyrir börn og fjölskyldur. Höfundar mæta og lesa úr jólabókunum og stýra föndursmiðjum og boðið upp á heitt kakó og smákökur. Hátíðin er styrkt af Barnamenningarsjóði og Bókasafnasjóði.
Hér má finna dagskrá Lestrarhátíðar: https://borgarbokasafn.is/lestrarhatid-fyrir-born-og-fjolskyldur
***
Reading Festival | Story Time and Wondrous Fish Workshop
Children’s book author and illustrator Ragnheiður Gestsdóttir will read from The Red Fish, the Icelandic children’s classic written by her mother Rúna (Sigrún Guðjónsdóttir), and lead a workshop inspired by the book.
Warm cocoa and cookies will be served.
The program is a part of the Reading Festival founded by Children Culture Fund of Iceland and the Library Fund.
Nánari upplýsingar veitir / For further information:
Þorgerður Agla Magnúsdóttir, verkefnastjóri bókmennta og lestrarhvatningar
[email protected] | 411-6149
Advertisement

Event Venue

Borgarbókasafnið Árbæ, Hraunbær 119, 110 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you: