Leslyndi með Einari Má Guðmundssyni | Menning á miðvikudögum

Wed May 07 2025 at 12:15 pm to 01:00 pm UTC+00:00

Bókasafn Kópavogs | Kopavogur

MEK\u00d3 - Menning \u00ed K\u00f3pavogi
Publisher/HostMEKÓ - Menning í Kópavogi
Leslyndi me\u00f0 Einari M\u00e1 Gu\u00f0mundssyni | Menning \u00e1 mi\u00f0vikud\u00f6gum Lesslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst.
Einar Már Guðmundsson, rithöfundur, mætir á Bókasafn Kópavogs í maí og fjallar um nokkrar uppáhaldsbækur.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Viðburðurinn er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.
***
Einar Már Guðmundsson er fæddur í Reykjavík 18. september 1954. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Tjörnina 1975 og B.A. prófi í bókmenntum og sagnfræði frá Háskóla Íslands 1979. Hann bjó í Kaupmannahöfn í sex ár og stundaði framhaldsnám í bókmenntafræði við Kaupmannahafnarháskóla.
Fyrsta bók Einars Más, ljóðabókin Er nokkur í kórónafötum hér inni, kom út árið 1980. Árið 1985 fékk hann fyrstu verðlaun í bókmenntasamkeppni Almenna bókafélagsins fyrir skáldsöguna Riddarar hringstigans. Síðan hefur Einar Már sent frá sér fjölda verka og hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir ritstörf sín. Bækur hans hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál og skáldsagan Englar alheimsins fékk Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1995. Samnefnd kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar var frumsýnd í Reykjavík á nýjársdag árið 2000. Einar Már fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin 2015 fyrir Hundadaga auk þess sem aðrar bækur hans hafa fengið tilnefningar til þeirra.

Event Venue

Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6a,Kópavogur, Kopavogur, Iceland

Sharing is Caring:

More Events in Kopavogur

Lesi\u00f0 \u00e1 milli l\u00ednanna | Kul
Thu, 08 May, 2025 at 03:00 pm Lesið á milli línanna | Kul

Bókasafn Kópavogs

Vorverkin \u00ed gar\u00f0inum
Thu, 08 May, 2025 at 05:00 pm Vorverkin í garðinum

Núpalind 7, 201 Kópavogsbær, Ísland

\u00c1 \u00edslenskum n\u00f3tum
Wed, 14 May, 2025 at 08:00 pm Á íslenskum nótum

Salurinn Tónlistarhús

Viltu ver\u00f0a TRE lei\u00f0beinandi?  TRE certifcation training in Reykjav\u00edk, Iceland
Sat, 17 May, 2025 at 09:00 am Viltu verða TRE leiðbeinandi? TRE certifcation training in Reykjavík, Iceland

Heillandi hugur - Fræðslu og heilsusetur

Vistarverur | KIMI tr\u00ed\u00f3 | T\u00edbr\u00e1
Sun, 18 May, 2025 at 01:30 pm Vistarverur | KIMI tríó | Tíbrá

Salurinn Tónlistarhús

Testament
Tue, 20 May, 2025 at 08:00 pm Testament

VBC MMA

Kopavogur is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Kopavogur Events