Advertisement
Sýningarstjórinn Sunna Ástþórsdóttir veitir leiðsögn um sýninguna Guðrún Kristjánsdóttir: Leiðir, á Kjarvalsstöðum þann 3. maí kl. 14.00.Guðrún hefur skapað sér sérstöðu í íslenskri myndlist með verkum sem skoða samband náttúru og manns, mótað af veðri og birtu á Íslandi. Hún nálgast náttúruna sem lifandi afl, þar sem kyrrð og kraftur mætast og óvænt fegurð birtist í hógværum augnablikum.
Sýningin spannar verk frá áratugalöngum ferli Guðrúnar og gefur heildstæða mynd af óþrjótandi áhuga listakonunnar á að fanga upplifun okkar af náttúrunni - frá agnarsmáum vatnsdropum til þokukenndra fjallstinda, bláma fjarskans og ljósi sem breytist á hverri stundu. Sýningin tengir saman náttúru, skynjun og tíma og kallar fram upplifun sem er bæði sjónræn og tilfinningaleg – andartak til að staldra við og finna snertingu við umhverfið.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.
//
Curator Sunna Ástþórsdóttir will give a guided tour of the exhibition Guðrún Kristjánsdóttir: Traces, in Kjarvalsstaðir 3rd of May at 2PM.
Guðrún has carved out a unique place in Icelandic art with works that explore the relationship between nature and man, shaped by the weather and light in Iceland. She approaches nature as a living force, where stillness and power meet and unexpected beauty emerges in humble moments.
The exhibition spans works from Guðrún's decades-long career and provides a comprehensive picture of the artist's tireless interest in capturing our experience of nature - from tiny drops of water to misty mountain peaks, the blue of the distance and light that changes at every moment. The exhibition connects nature, perception, and time, evoking an experience that is both visual and emotional – a moment to pause and feel connected to the environment.
Admission with museum ticket. Free for Annual pass- and Culture Card holders, free for visitors under 18.
Advertisement
Event Venue
Kjarvalsstaðir, Flókagata 24, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











