Advertisement
Leik og Sprell verður á Selfossi í sumar!Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið sem ferðast vítt og breitt um landið og er opið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-13 ára. Allir fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu. Út frá lögunum sem börnin hafa valið sér, spuna og leik búum við til sýningu sem er opin fyrir aðstandendur.
5 daga námskeið, kennt 3 klukkustundir í senn, verð: 31.900 krónur. Kennari námskeiðsins er Sigurpáll Jónar Sigurðarson.
Athygli er vakin á því að hægt er að nýta frístundastyrkinn við skráningu.
Nánari upplýsingar um námskeið, kennara og skráningu má finna á leikogsprell.is
Fyrir allar fyrirspurnir má ávallt einnig hafa samband á [email protected]
Hlökkum til að sprella með ykkur í sumar! 🥳
Advertisement
Event Venue
Selfoss, 800 Sveitarfélagið Árborg, Ísland, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.






