Advertisement
Haldið’ekki að kallinn hafi náð 40 ára aldri. Svei mér þá, hverjum hefði dottið það í hug, miðað við fífldirfskuna og vafasamar lífsstíls ákvarðanir. En hann tórir enn, Leifur Eiríksson á víst enn sín síðustu lönd ókönnuð.Og hann langar að halda uppá áfangan. Fagna sjálfum sér. Gat nú verið, hefur alltaf verið svolítið góður með sig sá at arna.
Og hvað er meira viðeigandi, fyrir mann sem hefur nánast helgað líf sitt tónlist, en að kallinn sjálfur stígi á stokk, syngi og dansi fyrir ykkur með sín sérstöku mannapalæti.
Haeldénú!
Og hann hefur þá ósvífni að ætlast til þess að gestirnir sínir borgi fyrir herlegheitin.
Hvusslags?!
Hann hefur þó haft fyrir því að lokka til sín tvær aðrar saklausar sálir til að serenaða fyrir mannskapinn svo það sé nú áreiðanlega eitthvað kjöt á þessum beinum, jafnvel smá fita meððí.
Vitað skal þá, að veislu skal halda manninum til höfuðs, ég meina heiðurs, þann 7. mars næstkomandi í hinum Hvíta Lótus, neðst á stræti bankanna, enda kauði þekktur fyrir að banka á hinar ýmsu dyr gegnum tíðina.
Það verður sungið og hlegið, en aðalega ætlar hann þó sjálfur að syngja og vænast áheyrnar í einhverskonar tilraun til að réttlæta í hæsta máta furðulega framgengni undanfarna áratugi.
Hleypt verður inn í salinn skömmu uppúr kvöldmat, um 8 leytið, og hefjast tón og sjónarspil nokkuð stuttlega eftir það.
Fram koma:
Unnur Andrea Einarsdóttir í dulargervinu: Apex Anima
Arnljótur Sigurðsson í haminum: Kraftgalli
og auðvitað Ljósvaki sjálfur með þeim stælum sem honum ævinlega fylgja.
Heyrst hefur að hinn svakalegi Svaki ætli að prófa ýmsa nýjunga á tilraunardýrum sínum það kvöldið, bæði í hljóði og sjón.
En óttist ei, dyrunum verður ekki læst að utan ef ske kynni að herlegheitin falli ekki öllum flónum og fljóðum til geðs.
Eftir að tónleikum lýkur býðst gestum að henda nokkrum fúkyrðum og skömmum, jafnvel fingurkoss, að kallinum áður en þau yfirgefa húsnæðið eitthvað uppúr miðnætti til að gera upp fyrir fyrri skuldarsakir. Það verður enginn skífuþeytir þannig að aðdáendum og óvinum er óhætt að leggja á ráðin í næði vel eftir að látunum lægir.
Ýmsar fljótandi veigar til að liðka raddböndin verður hægt að klófesta af hinum Hvíta Lótus í skipti fyrir almennan gjaldeyri.
Hlakka til að sjá ykkur elsku vinir og fagna 40 jarðhringjum!
Með þökk og ástarkveðju,
Leifur ❤️
TLDR:
Leifur er að verða fertugur og heldur tónleika með góðum gestum.
Miðaverð er 3.000 kr sem fer í að greiða sal, ágóði dreifist á listamenninna.
Leifur afþakkar gjafir en þiggur fjárstyrki til frekari tónlistar viðleitni, helst vill hann þó bara að þú kaupir miða handa sjálfu þér á tónleika með sjálfum sér í afmælisgjöf.
Kennitala og reikningsnúmer verða uppgefin á staðnum til að millifæra fyrir styrktaraðila.
🔥🔥🔥
I am aware this text is completely lost on English speakers.
Basically, Leifur is turning 40, and he would love for you to come and celebrate with him.
He’s renting a venue and has 2 other artists on the line-up with him, Kraftgalli and Apex Anima. If you don’t know them, they are super cool and fun, and you’ll enjoy it.
I know, paying admission for a birthday party is slightly unusual. It’s a spur-of-the-moment decision, and he hadn’t saved any money for it, so he would very much appreciate it as a birthday gift if you bought a ticket to his concert to cover the venue fee and such.
To be fair, it’s the first time he’s ever asked for tickets, so you’ve been very fortunate to enjoy his talents for free so far.
Well, I guess he’s growing up or something, finally deciding to take this music thing seriously.
The doors open at 20:00, and the first concert is at 20:30.
Live music will continue until midnight, with short breaks between acts.
After midnight, there will be time and space to mingle and enjoy.
No DJ, so you can have conversations with your friends at a reasonable volume after the concert.
Hope to see you there to celebrate with me!
With love,
Leifur ❤️
Advertisement
Event Venue
White Lotus Venue - Iceland, Bankastræti 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











