Advertisement
Við kynnum undirbúningsnámskeið fyrir Laugavegshlaupið og Fimmvörðuhálshlaupið. Skráning í Laugavegshlaupið hefst 6. nóvember og skráning í Fimmvörðuhálshlaupið hefst 8. nóvember.
Þann 20. nóvember tilkynnir Laugavegshlaupið hverjir fengu skráningu í keppnina.
Skráning á 5VH námskeiðið hefst 8. nóvember kl. 12:00.
Skráning á Laugavegsnámkeiðið hefst 20. nóvember kl. 12:00.
Kynningarkvöldið verður haldið í verslun 66°Norður Faxafeni miðvikudagskvöldið 20. nóvember kl. 20:00.
Námskeiðin eru í höndum reyndra hlaupaþjálfara í skemmtilegum félagsskap. Sameiginlegar æfingar, skemmtileg æfingaprógröm og fræðsla.
Laugavegsnámskeið Náttúruhlaupa hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár og verður haldið í níunda skiptið á næsta ári. Námskeiðið býður uppá faglega handleiðslu, markvisst æfingaprógram, getuskipta hópa og fjölbreyttar sameiginlegar æfingar tvisvar í viku. Með virkri þátttöku á námskeiðinu munt þú koma brosandi í mark í Laugavegshlaupinu 2025!
Umsjón og þjálfun: Elísabet Margeirsdóttir hefur yfirumsjón með námskeiðinu. Reynslumiklir þjálfarar koma að námskeiðinu og fylgja hverju getustigi.
Námskeiðið er fyrir alla sem hafa góðan bakgrunn í hlaupum og stefna á að hlaupa Laugavegshlaupið 2025. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 2. apríl og stendur fram að Laugavegshlaupinu sem fer fram 12. júlí 2025.
Nánari upplýsingar og skráning á Laugavegsnámskeiðið: https://natturuhlaup.is/namskeid/laugavegsnamskeid/
ATH. Skráning í Laugavegshlaupið sjálft er opin til og með 13. nóvember á www.laugavegshlaup.is Skráning og skráningargjald í Laugavegshlaupið er ekki innifalin í undirbúningsnámskeiðinu.
5VH/Fimmvörðuhálsnámskeiðið er 15 vikna hlaupaprógram fyrir fólk sem vilja þjálfa sig upp í að taka þátt í 5VH hlaupinu 9. ágúst eða öðru 20-30 km utanvegahlaupi síðla sumars. Námskeiðið, sem verður haldið í þriðja sinn á næsta ári, byggir á grunni hins vinsæla undirbúningsnámskeiðs fyrir Laugavegshlaupið, en fyrir hlaupara sem vilja byrja á spreyta sig á styttri vegalengd í utanvegahlaupunum. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 29. apríl og stendur fram að 5VH hlaupinu 9. ágúst. Umsjón: Ingvar Hjartarson ásamt reynslumiklum þjálfurum.
Námskeiðið byggir upp góðan grunn fyrir þau sem stefna á Laugavegshlaupið eða lengri hlaup í framtíðinni. 5VH keppnin yfir Fimmvörðuháls í ágúst gefur ITRA stig og náðu öll sem tóku þátt bæði á námskeiðinu og 5VH hlaupinu þeim lágmarksstigum (370 stig) sem þarf til að skrá sig í Laugavegshlaupið.
Nánari upplýsingar og skráning á 5VH námskeiðið: https://natturuhlaup.is/namskeid/5vh-namskeid/
Skráning í 5VH hlaupið opnar 8. nóvember og fá þátttakendur á 5VH námskeiðinu 15% afslátt af skráningargjaldinu.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Verslun 66°Norður Faxafeni, Faxafen 12, 108 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland