Advertisement
Kúmenfræin í Viðey 🌿 eru orðin fullþroskuð til að tína og þér er boðið í fræðandi uppskeruferð. Björk Bjarnadóttir, umhverfis- og þjóðfræðingur leiðir tínsluna og segir gestum frá sögu kúmensins og fleiru sem tengist Viðey.Upphaf kúmenræktunar má rekja til aftur til Skúla Magnúsar landfógeta sem hóf ýmsar ræktunartilraunir í Viðey upp úr miðri átjándu öld, þó með misjöfnum árangri. Viðeyjarkúmenið vex þar enn og þykir smærra og sætara en annað kúmen en það eru ekki allir sem vita að þetta litla fræ hefur þó nokkurn lækningamátt og ekki skemmir fyrir hversu bragðgott það er.
Gestir eru hvattir til að taka með sér taupoka, lítinn hníf🔪 eða skæri✂️.
Siglt verður frá Skarfabakka kl. 13:15. Björk tekur á móti gestum göngunnar við kirkjuna úti í Viðey. Gangan sjálf tekur um 1,5-2 klst. Ferjan siglir tilbaka að göngunni lokinni.
‼️Vinsamlegast kaupið miða fyrirfram í ferjuna á heimasíðu Eldingar: https://elding.is/is/videyjarferjan-fra-skarfabakka
Þátttaka í göngunni er gestum að kostnaðarlausu en greiða þarf í ferjuna. Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og handhafar Gestakortsins (Citycard.is) sigla frítt.
//
The Caraway Seeds on Viðey Island 🌿 are ripe enough to harvest, and you are invited for a memorable and educational harvesting trip with Björk Bjarnadóttir, who is an environmentalist and ethnologist.
Bring a cloth bag, a small knife🔪 or a pair of scissors✂️ for this event.
The ferry will depart from Skarfabakki at 13:15. Björk will welcome the walk participants by the church on Viðey island. The walk itself takes about 1,5–2 hours. The ferry will sail back after the walk is over.
‼️Please purchase tickets beforehand at https://elding.is/videy-ferry-skarfabakki
The ferry leaves Skarfabakki at 13:15. The event itself is free of charge but you have to buy tickets for the ferry. Those with a Reykjavík Culture Pass receive a 10% discount on ferry tickets, and holders of the Reykjavík City Card (Citycard.is) travel for free.
Advertisement
Event Venue
Viðey / Videy Island, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.







