Kristinn Sigmundsson master class

Mon, 22 Jun, 2026 at 09:30 am to Thu, 25 Jun, 2026 at 04:00 pm UTC+00:00

Strandgata 34, IS-220 Hafnarfjörður, Iceland | Hafnarfjörður

S\u00f6ngh\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed Hafnarborg - Songfest
Publisher/HostSönghátíð í Hafnarborg - Songfest
Kristinn Sigmundsson master class
Advertisement
Kristinn Sigmundsson - MASTER CLASS - 22.6. - 25.6.2026.
Sönghátíð í Hafnarborg 2026 býður upp á master class námskeið í klassískum söng. Kennari er Kristinn Sigmundsson bassi. Helga Bryndís Magnúsdóttir leikur með á píanó. Námskeiðið er fyrir söngvara og söngnemendur.
Námskeiðið fer fram í Hafnarborg, Strandgötu 24, í Hafnarfirði eftirfarandi daga:
Mánudaginn 22.6. – fimmtudaginn 25.6.2026 fyrir og eftir hádegi.
Hlekkur á umsókn: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLScXlVtB9Jl6CIPI-lX2vRtlUmFDrks7xsmnD0NmOSXwnIVuNg/viewform?usp=dialog
Fimmtudaginn 25. júní 2026 kl. 20:00: Tónleikar í Hafnarborg. Flytjendur eru virkir þátttakendur á master class námskeiðinu ásamt píanóleikaranum Helgu Bryndísi Magnúsdóttur. Tónleikarnir eru opnir áhorfendum. Þeir verða hljóðritaðir og fá þátttakendur eintak af upptökunni.
Námskeiðsgjald fyrir virka þátttakendur er 42.000 kr. Það innifelur hljóðupptöku af tónleikunum 26. júní, sem tilvalið er að söngnemendur noti sér til kynningar. Nemendum gefst einnig kostur á að festa kaup á klipptri myndbandsupptöku.
Athugið að fjöldi virkra þátttakenda er takmarkaður.
Lágmarkskrafa er að hafa lokið miðprófi í söng þegar námskeiðið fer fram. Lög og aríur á námskeiðinu og tónleikunum skulu sungin utanbókar.
Opnað verður fyrir umsóknir á næstunni.
Vinsamlegast beinið spurningum í netfangið [email protected]
www.songhatid.com
KRISTINN SIGMUNDSSON bassasöngvari lagði stund á söngnám hjá Guðmundi Jónssyni, Helene Karusso og John Bullock. Hann hefur komið fram í óperu- og tónleikahúsum víðsvegar um heim í u.þ.b. þrjá áratugi, svo sem New York, San Francisco, Los Angeles, Milano, London, Berlín, Amsterdam, Brüssel, Tokyo og Beijing. Hann hefur sungið yfir 100 óperuhlutverk. Kristinn hefur haldið marga ljóðatónleika á Íslandi, aðallega með Jónasi Ingimundasyni. Þeir hljóðrituðu Svanasöng og Vetrarferð Schuberts, auk nokkurra diska með íslenskum og erlendum sönglögum. Hann hefur auk þess tekið upp Vetrarferðina með Víkingi Heiðari Ólafssyni. Af öðrum upptökum má nefna Don Giovanni og Töfraflautuna undir stjórn Arnolds Östman (Decca), Jóhannesar- og Mattheusarpassíu Bachs með Franz Bruggen (Phillips) Szenen aus Goethes Faust eftir Schumann undir stjórn Philippe Herreweghe (Harmonia Mundi), Fidelio undir stjórn Sir Colin Davis (London Symphony Orchestra), Die Gezeichneten eftir Franz Schreker, stj. Lothar Zagrosek (Deutsche Grammophon) og síðast en ekki síst, The Ghosts of Versailles eftir John Corigliano undir stjórn James Conlon (Los Angeles Óperan). Sú upptaka vann til tvennra Grammy-verðlauna. Kristinn hefur hlotið fjölda viðurkenninga og má þar nefna Philadelphia Opera prize og Opernwelt-verðlaunin í Belvedere óperusöngvarakeppninni í Vín, Stämgaffeln - Det klassiska svenska fonogrampriset, Íslensku tónlistarverðlaunin, Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu, Bæjarlistamaður Kópavogs, Útflutningsverðlaun Forseta Íslands og Íslandsstofu, Grímuverðlaun - Söngvari ársins og Heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Advertisement

Event Venue

Strandgata 34, IS-220 Hafnarfjörður, Iceland, Strandgata 34, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland, Hafnarfjörður, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you: