Advertisement
ATH AÐ VIÐBURÐURINN ER OPINN ÖLLUM 🎉🚀Mistök eru óumflýjanlegur hluti af frumkvöðlaferðalaginu – en hvers vegna ekki að læra af mistökum annarra?
Á Klúðurkvöldi Startup SuperNova fáum við að heyra reynslusögur frumkvöðla sem hafa lent í alvöru áskorunum.
Þau segja okkur frá sínum stærstu klúðrum, hvað fór úrskeiðis og – mikilvægast af öllu – hvað þau lærðu.
Þetta er einstakt tækifæri til að hlæja, læra og fá ómetanleg ráð fyrir þína eigin vegferð 💥
Viðburðurinn markar jafnframt opnun umsókna í Startup SuperNova, hraðalinn sem KLAK - Icelandic Startups stendur að í samstarfi við Nova og Huawei.
Ef þú ert með viðskiptahugmynd er þetta fullkomið tækifæri til að fá innblástur og heyra frá þeim sem hafa siglt um stormasaman sjó frumkvöðlastarfsins ⛵
Klúðrarar verða kynntir þegar nær dregur 👏
Advertisement
Event Venue
Nova, Lágmúla 9, Lágmúli 8, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.







