Advertisement
Kaffidagur Dýrfirðingafélagsins Fella- og Hólakirkju 15. mars 2026
Kaffidagur Dýrfirðingafélagsins 15. mars 2026
Nú er rétt mánuður í hinn árlega vorfagnað okkar, Kaffidaginn. Undanfarna daga og vikur höfum við fundið vel fyrir bjartari dögum og ekki hefur sólin spillt fyrir. Kaffidagurinn er alltaf kærkomið tækifæri til að hitta ættingja, gamla vini og kunningja og hefur verið afskaplega góð þátttaka í deginum. Dagurinn verður með hefðbundnum hætti og hefst með guðsþjónustu kl. 14:00 í Fella- og Hólakirkju. Sr. Pétur Ragnhildarson predikar og þjónar fyrir altari. Félagar í Kirkjukór Dýrfirðinga leiða safnaðarsönginn undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Þau ykkar sem hafið áhuga á að syngja með kórnum eruð hvött til að hafa samband við Ragga Gunn á bollastadir hjá gmail.com
Að guðsþjónustu lokinni verður kaffisala í safnaðarheimilinu og er verðið á kaffi og glæsilegu meðlæti kr. 3500,- fyrir 18 ára og eldri. Kaffinefnd og stjórn félagsins sjá um skipulagningu dagsins en framlag allra sem eru tilbúin að leggja til brauðmeti eða tertur er afskaplega vel þegið. Í Kaffinefndinni eru Petrína Sæunn Úlfarsdóttir, Ásrún Leifsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Álfheiður Erla Sigurðardóttir, Ragnar Kjaran og Svanhildur Egilsdóttir.
Ágóði af veitingasölu Kaffidagsins hefur farið í sjóð sem veitt hefur verið úr til góðra málefna í Dýrafirði. Stjórn félagsins hefur ákveðið, að höfðu samráði við Ernu Höskuldsdóttur skólastjóra, að ágóðinn í ár verði nýttur til að styrkja aðbúnað unglingadeildar Grunnskólans á Þingeyri. Mun það efla jákvæða uppbyggingu í skóla- og frístundastarfi. Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt á Kaffidegi en vilja leggja sitt af mörkum er hægt að leggja inn á reikning Kaffisjóðs 0537-14-101004, kt. 660875-0189. Hlökkum til að sjá ykkur og og eiga með ykkur góða og nærandi stund!
Advertisement
Event Venue
Fella- og Hólakirkja, Hólabergi 88,Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











