Advertisement
Það eru engin jól án jólakonfekts Spectrum! Í kassanum eru alltaf klassískir jólalagamolar, en svo eru nokkrir með nýstárlegu bragði og sumir gamalkunnugir en í alveg nýjum umbúðum. Eins og alltaf er tryggt að það eru engir vondir molar og Spectrum-konfektið er hollt og hitaeiningafrítt. Stjórnandi Spectrum er Ingveldur Ýr og með okkur leikur einvalalið hljóðfæraleikara; Vignir Þór Stefánsson á píanó, Chrissie Telma Guðmundsdóttir á fiðlu og Þorvaldur Kári Ingveldarson á slagverk.
Miðaverð er 4.900 kr., en 1.200 kr. fyrir börn 12 ára og yngri. Hafið samband við kórfélaga til að fá miða á afsláttarverði.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Fella- og Hólakirkja, Hólabergi 88,Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











