Advertisement
Listasalur Mosfellsbæjar býður gestum og gangandi upp á sannkallaða jólamarkaðs-stemmingu. Yfir 60 listamenn sýna og selja list sína á Jóla-listamarkaði sem opnar þann 23. nóvember kl. 13. Þar má finna allt frá litlum vatnslitamyndum, málverkum, skúlptúrum, textílverkum og lömpum, til verka sem hafa eitt sinn verið barnadót en eru núna dulúðlegar verur.
Frábært tækifæri til að finna eitthvað alveg einstakt í jólapakkann til ástvina.
Jóla-listamarkaðurinn er opinn alla virka daga frá kl. 9-18 og 12-16 á laugardögum. Markaðurinn stendur til og með 20. desember.
Léttar veitingar á opnunardegi.
Öll velkomin!
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Kjarni, Þverholt 2, 270 Mosfellsbær, Iceland, Þverholt 2, 270 Mosfellsbær, Ísland,Mosfellsbær, Reykjavík, Iceland