Advertisement
JazzVox 2026Vortónleikar Vox Populi, verða miðvikudagskvöldið 13. maí, í Grafarvogskirkju kl. 20.
Við endurtökum leikinn og höldum aftur vortónleika með jazzþema í samstarfi við jazzpíanista Íslands, Sunnu Gunnlaugsdóttur. Við munum flytja nokkur dásamleg lög eftir hana, ásamt öðrum velvöldum perlum.
Kór Grafarvogskirkju verður sérstakur gestur hjá okkur og syngur með okkur nokkur lög. Í október fara kórarnir saman á kórmót til Ítalíu, því er tilvalið að syngja saman nokkur lög sem við munum flytja þar. Guðný Einarsdóttir er kórstjóri þeirra.
Sunna Gunnlaugs leikur af sinni alkunnu snilld á flygil.
Nico Moreaux leikur ljúfa tóna á kontrabassa og Scott McLemore fremur galdra á trommur.
Kórstjóri og hugmyndasmiður er okkar eina sanna Lára Bryndís Eggertsdóttir.
Miðaverð er 3000 kr. Frítt fyrir eldri borgara og 12 ára og yngri. Selt er inn við innganginn á tónleikadaginn.
Endilega takið daginn frá til að upplifa vorandann, geislandi bros og hlýtt í hjartað.
Advertisement
Event Venue
Grafarvogskirkja við Fjörgyn, 112 Reykjavík, Iceland, Fjörgyn 1, 112 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.










