Jólamarkaður

Sat, 06 Dec, 2025 at 01:00 pm to Sun, 07 Dec, 2025 at 05:00 pm

Dalabúð | Reykjavík

J\u00f3lamarka\u00f0ur
Advertisement
Það er komið að hinum árlega jólamarkaði. Að þessu sinni verður hann haldinn í Dalabúð :)
Margir söluaðilar hafa meldað sig og verður nóg að skoða og versla fyrir jólin :)
Piparkökuhúsaskreytingarkeppni verður þessa helgi einnig en börn geta komið með fallega skreytt piparkökuhús á laugardeginum þar sem að þau verða til sýnis en á sunnudeginum munu dómarar renna yfir húsin og kl 16 verður tilkynnt um sigurvegara.
Keppt er í tveimur flokkum:
leikskólaaldur til 4. bekk og 5. bekkur til 10. bekk.
Hvetjum öll börn til að fara að skreyta og mæta með húsin sín snemma á laugardeginum svo allir geti fengið að njóta þeirra :D
Starfsmannafélag Auðarskóla mun sjá um kaffi og kökusölu :)
Söluaðilar:
Rjómabúið Erpstaðir
Urður Ull
Dalamey
Eiríksstaðir
Ásgarður
Þurranes
Miðskógur
Daley kerti
LindarPrjón
Skeggjadalsmæðgur
Heiðrún Sandra
Krabbameinsfélag
Hugrún á Völlum
Halla
Dagný Lára
Slysavarnardeild Dalasýslu
Valþúfa
Alex
Gamla læknahúsið
Jónfríður
Það verður því nóg af matarkyns, handverki og fleiri vörum :)

Höfum gaman saman :D
Endilega hjálpið okkur að deila viðburðinum sem víðast og endilega bjóðið vinum á hann :D
Advertisement

Event Venue

Dalabúð, Miðbraut 11, 370 Dalabyggð, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you: