Advertisement
Jólaball KFUM og KFUK verður haldið á Holtavegi 28 laugardaginn 20. desember klukkan 14:00. Þetta verður falleg fjölskyldustund sem kemur okkur í sannkallaðan jólagír þar sem allir eru velkomnir, fjölskyldur, vinir, ömmur, afar og frænkur.Á jólaballinu verður lifandi hljómsveit og dansað í kringum jólatréð, piparkökuskreytingar, jólaföndur, léttar veitingar og jólasveinarnir sjálfir kíkja í heimsókn.
Allur ágóði af jólaballinu rennur til uppbyggingar á nýju íþróttahúsi í Ölveri.
Aðgangur er ókeypis fyrir 0–6 ára og 1.500 krónur fyrir 7 ára og eldri. Skráning fer fram á sumarfjör.is undir hnappinum Viðburðir KFUM og KFUK.
https://www.sumarfjor.is/Event.aspx?id=11
Við hlökkum til að sjá ykkur og byrja nýja hefð í jólagleðinni saman á Holtavegi 28.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Holtavegur 28, 104 Reykjavík, Iceland, Holtavegur 28, 104 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











