II Dýpri Qigong lífsorka, heilun og gleði - Losum um spennu og erfiðar tilfinningar

Sun Feb 15 2026 at 01:00 pm to 05:00 pm UTC+00:00

Leiðin heim - Holistic healing center | Reykjavík

Qigong l\u00edfsorka og gle\u00f0i
Publisher/HostQigong lífsorka og gleði
II D\u00fdpri Qigong l\u00edfsorka, heilun og gle\u00f0i - Losum um spennu og erfi\u00f0ar tilfinningar
Advertisement
Námskeið er fyrir þá sem vilja læra meira um af hverju Qigong æfingar og hugleiðslu hafa svo góð áhrif á andlega og líkamlega heilsu.
Til viðbótar er sérstök áhersla á magnaðar heilunaræfingar sem geta hjálpað okkur að vinna úr erfiðum tilfinningum eins og sorg, depurð, reiði, kvíða og áhyggjum. Æfingarnar stuðla að meiri lífsorku, gleði og við eflum jákvæða lífsafstöðu.
Hér er líka tækifæri fyrir þá sem vilja byrja að leiða nokkrar æfingar, t.d. í vinnunni.
Meðmæli frá frú Vigdísi Finnbogadóttur fv. forseta „... Af eigin reynslu er mér ljúft að mæla með Þorvaldi sem frábærum leiðbeinanda fyrir þá sem hafa huga á að kynna sér Qigong til að viðhalda góðri lífsorku og efla jákvæða lífsafstöðu"
Qi (Chi) er lífsorkan. Í 5.000 ár hafa Kínverjar stundað Qigong til heilsueflingar og til lækninga.

Áhrif Qigong lífsmátans og æfinganna er m.a.:
* Tökum meiri ábyrgð á eigin lífi og líðan
* Styrkja líkamlegt og andlegt heilbrigði
* Jákvæðari tilfinningar – í eigin garð og annarra
* Minnka líkur á kulnun, kvíða og þunglyndi
* Meiri orka - tilbúin til að gera það sem okkur langar til
* Getum gefið meira af okkur - viljum að allir njóti sín sem best
* Betra og meira jafnvægi í samskiptum
* Sterkara ónæmiskerfi – minni lýkur á alvarlegum sjúkdómum
* Seinkar öldrun - njótum lífsins betur og lengur
Allir sem hafa sótt Qiong námskeið eru hjartanlega velkomin.
Þorvaldur Ingi Jónsson kennir Qigong og leiðir æfingarnar. Hann hefur undanfarin 16 ár sótt námskeið hjá mörgum Qigong meisturum. Hann er einn höfunda íslensku Qigong bókarinnar, Gunnarsæfingarnar.
Staðsetning - í fallegum sal Leiðin heim, Laugavegi 135 3. hæð -Bolholti - við hliðina á Reykjavík Foto
Með námskeiðinu fylgir stuðningur á netinu í 180 daga.
Te, kaffi og léttar veitingar fylgja yfir daginn.
Skráning og nánari upplýsingar veitir Þorvaldur, netfang [email protected]
Verð: 15.900 kr. (gr. innborgun 10.000.á reikning 525-26-870 kt. 660393-3159 Þor)
Ef bókað er á þetta námskeið og grunn-námskeiðið 14. febrúar, sjá https://www.facebook.com/events/1577299113272886 er afsláttarverð samtals 25.900 kr.
Meðmæli:
Edda Björgvinsdóttir, leikkona: Ég er með brosandi hjarta og uppfull af gleði eftir dásamlegt Qigong námskeið hjá Þorvaldi Inga. Ég hef bætt við fjölmörgum verkfærum í verkfæratöskuna mína til að stuðla að auknu heilbrigði, liðleika og meira orkuflæði.
Takk innilega fyrir mig.
Meðmæli frá frú Vigdísi Finnbogadóttur fv. forseta „... Af eigin reynslu er mér ljúft að mæla með Þorvaldi sem frábærum leiðbeinanda fyrir þá sem hafa huga á að kynna sér Qigong til að viðhalda góðri lífsorku og efla jákvæða lífsafstöðu" Sjá hér viðtal við Vigdísi frá árinu 2022

Ingibjörgar Kr. Ferdinands markþjálfa og jógakennara hjá Ljósinu endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda og Hæfi endurhæfingarstöð.
🥰
"Ég mæli heilshugar með þessum einstöku Qigong námskeiðum Þorvaldar Inga.
Ef þú vilt leysa gleðina enn betur úr læðingi innra, finna mun á lífsorkunni þinni og baða þig í innra jafnvægi og tengjast kjarnanum þínum enn dýpra þá myndi ég ekki hugsa mig tvisvar og fara á næsta námskeið! 💚💫
Virkilega falleg nálgunin á síðari deginum þar sem Þorvaldur kennir leiðir til sjálfsheilunar. 💫 Ég ætla að njóta þess að hafa Qigong sem hluta af mínu daglega lífi".
💞
Jóhanna Lárusdóttir ferða leiðbeinandi hjá Travel Uninterrupted
Í september 2023 tók ég þátt í þessu dásamlega námskeiðum. Fyrir námskeiðið taldi ég mig hugsa nokkuð vel um líkama og sál, en þetta námskeið var ótrúlega lærdómsríkt og áhrifamikið. Námskeiðið hófst á afskaplega fróðlegum fyrirlestri. Ég sá ekki eftir að hafa tekið báða dagana því seinni daginn var farið enn dýpra í fræðin. Ég átti ekki von á því að verða svona heilluð og finna strax áhrifamátt Qigong. Einnig er mikill stuðningur í þeim gögnum sem fylgja námskeiðinu. Strax eftir námskeiðið upplifði ég frelsi og svo mikla gleði. Mér fannst ég sjá lífið í bjartara og betra ljósi. Mér fannst ég öðlast orku og kraft til að stuðla að eigin velferð og hamingju. Líf okkar er einstakt, við eigum bara einn líkama og það er mikilvægt að fara vel með hann. Mér finnst dásamlegt að geta hlúð að líkama og sál með Qigong lífskrafti.
Eggert Kaaber leikari og kennari: https://www.facebook.com/Qigonglifsorka/videos/1187907191627710
Herdísar Pálu Pálsdóttur, fyrirlesari og fv. mannauðsstjóri: Eftir að hafa lengi vitað af Þorvaldi og Qigong æfingum undir hans stjórn fengum við hann með stutt innlegg og nokkrar æfingar á starfsdag í vinnunni og var mjög mikil ánægja með hann og æfingarnar. Þetta atriði byggði upp góða orku og gleði fyrir daginn.
Í framhaldinu skellti ég mér á námskeið hjá Þorvaldi og get svo sannarlega mælt með því. Góð blanda hreyfingar, öndunar og hugleiðslu er frábær til að styðja við góða andlega og líkamlega heilsu og spekin á bak við Qigong styður vel við heilbrigða og jákvæða lífsafstöðu
Skráning og nánari upplýsingar veitir Þorvaldur, netfang [email protected]

Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Leiðin heim - Holistic healing center, Laugavegur 178, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets
Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Discover more events by tags:

Health-wellness in Reykjavík

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

Endurvinnslan
Sat, 14 Feb at 02:00 pm Endurvinnslan

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

\u00deorrabl\u00f3t KKD Skallagr\u00edms
Sat, 14 Feb at 06:00 pm Þorrablót KKD Skallagríms

Hjálmaklettur Menningarhús

Fj\u00f6lskyldudagskr\u00e1 H\u00f6rpu: Hiphop dansveisla
Sun, 15 Feb at 02:00 pm Fjölskyldudagskrá Hörpu: Hiphop dansveisla

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

Saraste stj\u00f3rnar Bruckner
Thu, 19 Feb at 07:30 pm Saraste stjórnar Bruckner

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

Lymphatics Rewired Iceland
Fri, 20 Feb at 09:00 am Lymphatics Rewired Iceland

Heilsumiðstöð Reykjavíkur

Kristmundur Axel \u00ed 15 \u00e1r
Fri, 20 Feb at 07:30 pm Kristmundur Axel í 15 ár

Gamla Bíó

The Legend Of Springsteen
Fri, 20 Feb at 08:00 pm The Legend Of Springsteen

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

Pulp Fiction - F\u00f6studagspart\u00eds\u00fdning!
Fri, 20 Feb at 09:00 pm Pulp Fiction - Föstudagspartísýning!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events