Advertisement
Yoga Nidra · Lucid Dreaming · Djúpslökun & Tónheilun🌙💙Þér er boðið í helga og umbreytandi stund þar sem við sameinum forna visku Blue Lotus blómsins, djúpa slökun Yoga Nidra & innleiðingu í heim meðvitaðra drauma (Lucid Dreaming).
Blue Lotus hefur í þúsundir ára verið notað í helgisiðum fyrir ró, hjartaopnun, innsæi og draumavinnu. Í þessari te-seremóníu munum við drekka Blue Lotus te með fullri meðvitund og leyfa líkama og huga að mýkjast inn í djúpt slökunarástand.
✨ Yoga Nidra hugleiðsla leiðir þig í ástand milli vöku og svefns, þar sem taugakerfið endurstillist, undirmeðvitundin opnast og hugurinn verður móttækilegur fyrir innsæi og heilun.
🎶Mjúkt tónferðalag sem aðstoðar þig við að ná enn betri slökun inn í þessa stund.
🌙 Í lokin verður mild leiðsögn inn í Lucid Dreaming, þar sem þú færð verkfæri til að:
- auka draumaminni
- verða meðvitaðri í draumum
- tengjast dýpri lögum undirmeðvitundarinnar
- vinna með drauma og núvitund sem leið til sjálfskönnunar og sköpunar
Þessi stund er fyrir þig ef þú:
🌙djúpa hvíld og innri ró
🌙vilt tengjast innsæi þínu og draumaheimi
🌙ert forvitin/n um hugleiðslu, draumavinnu og breytta meðvitund
🌙vilt skapa nærandi tíma fyrir sjálfa/n þig
Þú mátt búast við:
🌙Helgri te-seremóníu með Blue Lotus
🌙Leiddri Yoga Nidra hugleiðslu (liggjandi)
🌙Fræðslu og leiðsögn í Lucid Dreaming
🌙Öruggu, hlýju og nærandi rými
Komdu í þægilegum fatnaði, við erum með augnhvílur en ef þú átt þína uppáhalds er gott að taka hana með, vatnsbrúsa, blað og penna.
Verð: 7500 kr
Við hlökkum til að sjá þig Kolbrún og Danni.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
REYR Studio, Fiskislóð 31, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.





