Advertisement
Tónlistarkonan BRÍET hefur skapað þá árlegu hefð að halda hátíðlega tónleika með jólaívafi í desember og ætlar nú að endurtaka leikinn og halda aftur tónleika í Silfurbergi í Hörpu þann 8. desember næstkomandi. MIÐASALA HEFST 25. SEPTEMBER KL 10:00 Á TIX.IS
Hún er þekkt fyrir að halda stórbrotna tónleika í bland við einlægni og hlýju og nánd við tónleikagesti. Hún ætlar að sjálfsögðu ekki að bregða frá því á þessum tónleikum sem verða með jólaívafi í bland við hennar eigin tónlist eins og síðustu ár. Og að sjálfsögðu fær hún einnig til sín góða gesti svo ekki láta þig vanta!
Lengd tónleika er um 90 mínútur án hlés.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Silfurberg, Austurbakki 2,Reykjavík, Iceland
Tickets