Advertisement
,,Hvað er" er erindaröð á vegum Náttúrusafns Kópavogs. Sérfræðingar úr ýmsum áttum eru fengnir til að varpa ljósi á ólík hugtök og fyrirbæri og skýra þau út á mannamáli.Í erindinu verður skýrir Arnar Pálsson prófessor við Háskóla Íslands á aðgengilegan máta hvað kyn er í líffræðilegum skilningi þess orðs og hvers vegna það er flóknara og fjölbreyttara fyrirbæri en margir gera sér grein fyrir.
Kynæxlun er stunduð af heilkjörnunum, og finnst meðal þeirra margvísleg tilbrigði í gerðum kynfruma og fjölda gerða (mökunargerða eða kyns).
Algengast er að finna tvö megin kyn, sem eru fær um að stunda kynæxlun og viðgang hverrar tegundar. En kyn er flókið fyrirbæri sem tengist mismun í kynfrumum, innri og ytri byggingu líkama og meðal dýra taugar og skynfæri sem móta kynvitund og kynhneigð. Fjöldi þessara einkenna og fjölbreytileiki í þeim milli einstaklinga veldur því að skilgreining á kyni er vandkvæðum bundin, sama hvort við leggjum upp með skýrt afmörkuð kyn eða róf kyntengdra einkenna. Fjallað verður um þessi mál með dæmum úr lífríkinu.
Arnar Pálsson er erfðafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands. Hann hefur doktorspróf í erfðafræði, og hefur rannsakað erfðir, þróun og þroskun og samspil þessara þátta. Til þess hafa Arnar og samstarfsmenn notað ávaxtaflugur, bleikjur, urriða, maura og lúsmý, svo eitthvað sé talið. Hann hefur einnig svarað nokkrum spurningum fyrir vísindavef HÍ um ólík efni.
https://www.visindavefur.is/hofundur/1508/arnar-palsson/
https://uni.hi.is/apalsson/IS/
Aðgangur er ókeypis.
Öll velkomin!
Advertisement
Event Venue
Náttúrusafn Kópavogs, Hamraborg 6A, 200 Kópavogsbær, Ísland, Kopavogur, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.






