Advertisement
Með því að læra að iðka hugleiðslu ræktum við smám saman með okkur vakandi huga og meðvitund í daglegu lífi og lærum að þekkja okkur sjálf á djúpan og náinn hátt. Að þekkja sjálfa sig á þennan hátt felur í sér fræ heilunar og kennir okkur að meta lífið sem við lifum.Kennari er Ástvaldur Zenki Traustason, kennari Zen á Íslandi
Hefst: 11. september 2025
Hvar: Klettháls 1, Reykjavík
Tími: Fimmtudagar frá 17.30-19.00
Verð: 25.000 krónur
Lengd: 4 skipti (lýkur 02. október )
Innifalið í námskeiðsgjaldi er þátttaka í allri dagskrá hjá Nátthaga á meðan námskeiðið varir og eru þátttakendur hvattir til að prófa að taka þátt í daglegri iðkun samkvæmt dagskrá.
Þátttakendum er einnig velkomið að taka þátt í fræðsluviðburðum sem boðið er upp á: leshringjum, fyrirlestrum og fleiru.
Námskeiðið er ætlað byrjendum sem lengra komnum og öllum þeim sem þrá að lifa lífinu lifandi og með vakandi athygli.
Iðkun zazen er grundvöllur þess sem í daglegu tali kallast núvitund (e. mindfulness) eða vakandi athygli. Með því að læra að iðka Zazen ræktum við smám saman með okkur vakandi huga og meðvitund í daglegu lífi og lærum að þekkja okkur sjálf á djúpan og náinn hátt. Að þekkja sjálfa sig á þennan hátt felur í sér fræ heilunar og kennir okkur að meta lífið sem við lifum.
Markmið námskeiðsins er m.a.:
Að kenna öndun og vakandi athygli í zazen, sitjandi hugleiðslu.
Að vinna með líkamann og auka líkamsvitund
Að útbúa stað heima sem er ætlaður hugleiðslu.
Að byggja upp hugleiðslurútínu í daglegu lífi
Að læra hefðbundin iðkunarform í setusal Zen Búddista og iðka zazen með öðrum.
Ath. Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir námskeiðinu
Allir eru hjartanlega velkomnir í nýtt húsnæði okkar að Kletthálsi 1 og er námskeiðið óháð trúar- eða lífsskoðunum.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Klettháls 1, 111 Reykjavík, Klettháls 1, 110 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets