Advertisement
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með vordagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 19. febrúar kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Hljómsveitin Tiktúra kemur fram. Kvintettinn var stofnaður síðla árs 2024 og leikur frumsamda blöndu af nútímadjass og sálartónlist með sterkum áhrifum úr þjóðlaga- og leikhústónlist. Tónlistin flakkar í orku allt frá ljúfum, einlægum og seiðandi tónum upp í ákafa og kraftmikla óreiðu. Fram koma:
Moritz Christiansen, saxófónn
Ásgeir Kjartansson, gítar
Kormákur Logi Bergsson, píanó
Hjálmar Karl Guðnason, bassi
Þorsteinn Jónsson, trommur
Tiktúra
Tiktúra is an Icelandic quintet featuring Ásgeir Kjartansson on guitar, Kormákur Logi Bergsson on piano, Moritz Christiansen on tenor saxophone, Hjálmar Carl Guðnason on bass and Þorsteinn Jónsson on drums. Founded in 2024 as a creative outlet for the frustrated musicians, the ensemble serves a mixture of modern jazz and soul with influences from folk and theatre music. Their soundscape is enticingly dynamic, ranging from serene, warm and sincere melodies to explosively aggressive, driving rhythms.
Moritz Christiansen, saxophone
Ásgeir Kjartansson, guitar
Kormákur Logi Bergsson, piano
Hjálmar Karl Guðnason, bass
Þorsteinn Jónsson, drums
The concert starts at 20 @ Björtuloft, Harpa Concert House. Tickets ISK 4500.
Spennandi vordagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í miðjan maí. Múlinn er að hefja sitt 28. starfsár en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu. Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 4500 og 3300 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets