Advertisement
Verið hjartanlega velkomin að fagna útgáfu bókarinnar Heimsins besti dagur í helvíti eftir Lilju Ósk Snorradóttur í bókabúð Sölku föstudaginn 3. október kl. 17. Boðið verður upp á léttar veitingar og bókin verður að sjálfsögðu á útgáfutilboði. Við hlökkum til að sjá ykkur!Um bókina:
„Ég get skipt lífinu upp í þrjá kafla.
Fyrir, eftir og ferðalagið þar á milli.“
Þegar Lilja Ósk flækir fæturna í hundabúri í miðju matarboði og dettur á höfuðið er hún sannfærð um að hún muni jafna sig fljótt og örugglega, enda hefur hún hvorki tíma né þolinmæði til annars. Raunin verður þó önnur. Hvað tekur kona til bragðs sem týnir sjálfri sér? Hvenær ætli heimsins besti dagur í helvíti komi?
Hrá, einlæg, átakanleg og á köflum fyndin frásögn af því hvernig lífið getur breyst á einu andartaki.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Salka, Hverfisgata 93, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland