Haustpeysufögnuður

Sat Nov 29 2025 at 02:00 pm to 04:00 pm

Bíó Paradís | Reykjavík

Havar\u00ed
Publisher/HostHavarí
Haustpeysuf\u00f6gnu\u00f0ur
Advertisement
Haustpeysufögnuður Havarí í Bíó Paradís og nýtt haustpeysulag með Benna Hemm Hemm.
Haustpeysa Prins Póló hefur verið þróuð sem prjónauppskrift í samstarfi við Ístex og er nú fáanleg í prjónapakka sem hefur rokið út í forsölu.
Haustpeysan var hönnuð árið 2021 af Svavari Pétri Eysteinssyni, Prins Póló og Sigrúnu Höllu Unnarsdóttur og hefur verið framleidd af prjónaverksmiðjunni Glófa í nokkrum litum. Tveir nýir litir bættust í flóruna á dögunum.
Benni Hemm Hemm hefur nú samið lag sérstaklega fyrir verkefnið; Haustpeysan mín. Lagið verður gefið út á helstu streymisveitum föstudaginn 21. Nóvember.
Laugardaginn 29. nóvember verður blásið til fögnuðar í Bíó Paradís af þessu tilefni. Benni Hemm Hemm og Kórinn munu frumlytja lagið og hægt verður að skoða og máta og kaupa peysur og prjónapakka á staðnum.
Við hvetjum fólk til að mæta í sinni uppáhalds haustpeysu og grípa með sér prjónana.
Hluti af ágóða verkefnisins rennur í Minningarsjóð Svavars Péturs Eysteinssonar. Sjóð sem styrkir árlega skapandi fólk með stórar hugmyndir.
Saga Haustpeysunnar
Í fyrndinni hóaði Svavar Pétur Eysteinsson saman vinum og vandamönnum, sem hittust í uppáhalds haustpeysunum sínum á Óðinstorgi. Var þetta gert til heiðurs lagsins Autumn Sweater með bandarísku hljómsveitinni Yo La Tengo. Þetta grín vatt heldur betur upp á sig, því nokkru síðar hafði Svavar Pétur hannað sína eigin haustpeysu, svo hannaði hann nýjar útgáfur af henni - og svo varð til sú hefð að gefa út haustpeysulag þegar ný peysa var tilbúin og sett á markað.
Hvar og hvenær:
Hvar: Bíó Paradís
Hvenær: 29. nóvember
Klukkan hvað: 14:00-16:00
Ókeypis inn
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Glatt og Bíó Paradís.
Advertisement

Event Venue

Bíó Paradís, Hverfisgata 54,Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Discover more events by tags:

Sports in Reykjavík

Ask AI if this event suits you: