Haukur Gröndal fagnar 50 ára afmæli með stórtónleikum í Hörpu

Tue, 30 Dec, 2025 at 08:00 pm UTC+00:00

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre | Reykjavík

Snorri Management
Publisher/HostSnorri Management
Haukur Gr\u00f6ndal fagnar 50 \u00e1ra afm\u00e6li me\u00f0 st\u00f3rt\u00f3nleikum \u00ed H\u00f6rpu
Advertisement
Haukur Gröndal fagnar 50 ára afmæli með stórtónleikum í Hörpu
Norðurljós – 30. desember 2025 kl. 20:00

Saxófón- og klarínettleikarinn, tónskáldið og útsetjarinn Haukur Gröndal fagnar 50 ára afmæli með stórtónleikum í Norðurljósasal Hörpu þriðjudagskvöldið 30. desember 2025. Haukur á að baki yfir þrjátíu ára feril í íslensku og alþjóðlegu tónlistarlífi, þar sem hann hefur skapað sér einstakan sess fyrir frumlega rödd, óvenjulega næmni og djúpa sköpunargleði.
Haukur hefur tekið þátt í fjölda tónlistartengdra verkefna á ferli sínum – allt frá lifandi tónlistarflutningi og tónsmíðum til útsetninga og útgáfu tónlistar, bæði hér heima og erlendis. Hljóðheimar hans eru marglaga og persónulegir; stundum spunakenndir og hráir, stundum silkimjúkir og íhugulir – ávallt undir sterku leiðarljósi sköpunar og ástríðu.

Ferill og menntun
Tónlistarnám hóf Haukur á barnsaldri. Hann lauk burtfararprófi í saxófónleik frá Tónlistarskóla FÍH árið 1997. Að því búnu hélt hann til Danmerkur og lauk meistaranámi frá Rytmisk Musikkonservatorium í Kaupmannahöfn árið 2004. Frá upphafi hefur Haukur unnið ötullega að þróun eigin tónmáls, oft á mörkum djass, klassíkur, heimstónlistar og þjóðlagaarfs.

Tónleikarnir – ferðalag í gegnum tón og tíma
Efnisskrá tónleikanna verður afar fjölbreytt og verða verk frá ólíkum tímabilum ferilsins leikin – hlustendum er boðið í ferðalag málað persónulegum og ljóðrænum litum. Með sér á sviði hefur Haukur úrvals tónlistarfólk sem hann hefur starfað með í gegnum árin í fjölbreyttu samhengi.

Þátttakendur
Haukur Gröndal
Ragnheiður Gröndal
Guðmundur Pétursson
Ásgeir Ásgeirsson
Þorgrímur Jónsson
Erik Qvick
Óskar Guðjónsson
Snorri Sigurðarson
Samúel J. Samúelsson
Magnús Trygvason Eliassen
Birgir Steinn Theódórsson
Pétur Grétarsson
Ólafur Jónsson

Miðasala
https://www.harpa.is/vidburdir/20579
Miðasala fer fram á harpa.is og hjá tix.is.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 þann 30. desember 2025 í Norðurljósasal Hörpu.
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

Retro Stefson \u2013 S\u00ed\u00f0asti Sjens st\u00f3rt\u00f3nleikar
Tue, 30 Dec at 07:30 pm Retro Stefson – Síðasti Sjens stórtónleikar

N1 Höllin Hlíðarenda

Kross\u00fej\u00e1lfum fj\u00f3rar hreyfingar \u00e1 viku allt \u00e1ri\u00f0 - Toppfara\u00e1skorun 2025 !
Wed, 31 Dec at 11:00 am Krossþjálfum fjórar hreyfingar á viku allt árið - Toppfaraáskorun 2025 !

Snæfellsjökull National Park

Gaml\u00e1rshlaup \u00cdR | SPORTV\u00d6RUR | LINDEX | NIVEA \/ IR New Year's Eve Race
Wed, 31 Dec at 12:00 pm Gamlárshlaup ÍR | SPORTVÖRUR | LINDEX | NIVEA / IR New Year's Eve Race

Harpa Conference Hall, 101 Reykjavík, Iceland

H\u00c1T\u00cd\u00d0ARHLJ\u00d3MAR VI\u00d0 \u00c1RAM\u00d3T \/ Festive Organ & Brass
Wed, 31 Dec at 04:00 pm HÁTÍÐARHLJÓMAR VIÐ ÁRAMÓT / Festive Organ & Brass

Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík, Iceland

HE.SHE.THEY x VOLUME - NYE BASH
Wed, 31 Dec at 09:00 pm HE.SHE.THEY x VOLUME - NYE BASH

Útópía Nightclub and Lounge

V\u00edkingur Taekwondo opi\u00f0 h\u00fas vor\u00f6nn 2026
Sat, 03 Jan at 01:00 pm Víkingur Taekwondo opið hús vorönn 2026

Safamýri, 108 Reykjavíkurborg, Ísland

N\u00fd\u00e1rshlaup Ultraform
Sun, 04 Jan at 09:00 am Nýárshlaup Ultraform

Gylfaflöt 10, Reykjavík, Iceland

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events