HAM+APPARAT = HAMPARAT Í HOFI Á AKUREYRI

Fri, 20 Feb, 2026 at 08:00 pm

Menningarhúsið Hof | Akureyri

HAM
Publisher/HostHAM
HAM+APPARAT = HAMPARAT \u00cd HOFI \u00c1 AKUREYRI
Advertisement
Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða á þennan stórviðburð ? !!!
Hljómsveitirnar HAM og Apparat Organ Quartet troðfylltu Eldborg fyrr á þessu ári undir samheitinu HAMPARAT. Það má fullyrða að þeir sem voru viðstaddir þennan samruna séu enn að jafna sig. Gagnrýnendur voru á einu máli um að sjaldan hefði Eldborg verið nærri því að standa undir nafni og breyst í "vélrænt helvíti, og það var unaðslegt", eins og Jónas Sen skrifaði svo eftirminnilega í fimm stjörnu dómi sínum á Vísi. Hann bætti við: "Ég veit ekki hvort ég get mælt með þessu. Ég veit ekki heldur hvort ég vil að þetta gerist aftur. En ef það gerist - þá verð ég mættur. Ekki af því ég vil það, heldur af því ég get ekki annað". "Hamparat sýndu fram á að tónlist getur verið meira en list - hún getur verið vopn" - "Þetta var árás á eðlilega skynsemi og hún heppnaðist fullkomlega".
HAMPARAT hefur nú ákveðið að gleðja landsmenn með því að glæða aftur eldinn og gera enn betur, því veislan mun að þessu sinni hefjast á Akureyri þar sem heimamönnum mun gefast tækifæri til að sjá Hof fyllast eldglæringum úr neðra þann 20. febrúar.
Advertisement

Event Venue

Menningarhúsið Hof, Strandgata 12, 600 Akureyrarbær, Ísland, Akureyri, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you: