Advertisement
Í hafnar.haus og hlemmur.haus er daglega boðið upp á ódýran og heilsusamlegan hádegisverð fyrir skapandi fólk sem vinnur á þessum stöðum. Á hverjum degi gefst færi á að tengjast fólki sem þú hefur aldrei hitt eða myndir aldrei hitta ef ekki væri fyrir óvænt kynni yfir matnum. Að þessu sinni færir .haus-samfélagið hádegisverðinn yfir í Klúbbinn og opnar dyrnar fyrir öllum sem vilja finna smjörþefinn af stemningunni. Hver veit, kannski hefurðu eignast nýjan vin eða mögulegan samstarfsaðila áður en máltíðin klárast.
Hádegismatur kostar 2.000 kr. Öll velkomin.
.haus rekur tvær skapandi miðstöðvar í miðbæ Reykjavíkur, með samtals 6.500 fermetra rými fyrir rúmlega 500 manns úr öllum skapandi greinum. .haus er vinnustaður en þó öðru fremur samfélag sem er opið almenningi og stendur fyrir ólíkum viðburðum sem sameina fólk. .haus trúir því að sköpun knýi framtíðina áfram. Með því að rækta forvitni, taka áhættu og fagna fjölbreytileika skapa miðstöðvarnar rými þar sem hugmyndir geta vaxið, tilraunir átt sér stað og óvænt samstarf orðið til.
Viðburðurinn er partur af dagskrá Klúbbs Listahátíðar í Reykjavík. Þar eru allir viðburðir ókeypis og öll velkomin. Klúbbur Listahátíðar í Reykjavík er í Iðnó og er opinn alla daga fram á kvöld 30. maí - 14. jún.
/
Both hafnar.haus and hlemmur.haus offer daily, cheap, and healthy communal lunches for the creatives working there. It’s an opportunity to connect with people you might have never met or wouldn’t ever meet, if it wasn’t for this moment of sharing a meal together. The .haus community is bringing their lunch to the Festival Hub in Iðnó and opening the doors to anyone who'd like to share a taste of that feeling. Who knows, you might have found a new friend or potential collaborator at the end of the meal.
Lunch will be served for 2.000 ISK. Everyone is welcome.
.haus has two creative hubs in downtown Reykjavík, with 6,500 m² of space for over 500 people from all kinds of creative fields. It’s a place to work, but more importantly, it’s a community that’s open to the public and full of events and activities that bring people together. The .haus community believes creativity drives the future. By staying curious, taking risks, and embracing diversity, it aims to create a space where ideas can grow, experiments happen, and unexpected collaborations emerge.
The event is part of the Festival Hub programme at the Reykjavík Arts Festival. All events are free of charge, and everyone is welcome. The Festival Hub takes place at Iðnó and is open daily from 30 May to 14 June, until the evening.
Advertisement
Event Venue
IÐNÓ, Vonarstræti 3,Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.









