Advertisement
Gyða Valtýsdóttir kemur fram ásamt tónlistarfólki í fremstu röð á einstökum tónleikum í Norðurljósasal Hörpu.Gyða Valtýsdóttir ・selló og söngur
Daníel Friðrik Böðvarsson ・gítar
Kjartan Sveinsson ・píanó
Skúli Sverrisson ・bassi
Úlfur Hansson ・hljóðgervill
Ólafur Björn Ólafsson ・ trommur/slagverk
Frank Aarnink og Júlía Mogensen ・kristalsglös
Kórinn Kliður ・söngur
Á þessum einstöku tónleikum fléttar Gyða saman hið forna og hið nýja. Heillandi útsetningar Gyðu á tónlist tónskálda á borð við galdranunnuna Hildegard von Bingen í bland við magnaða tónheima tónlistarfólks eins og Skúla Sverrissonar, Daníels Bjarnasonar, Kjartans Sveinssonar, Ólafar Arnalds og Úlfs Hanssonar sem ásamt fleirum eiga tónlist á margrómuðu plötu hennar, Epicycle II.
Titill plötunnar, Epicycle, er sóttur í heimsmynd Ptólemaíosar, sem lýsir vel tónlistarheimi Gyðu – víðfeðmur alheimur fullur af tilfinningalegri dýpt. Sem einn af stofnefndum múm hefur Gyða átt farsælan feril í fjölmörgum samstarfsverkefnum á sviði lista, komið fram á sviðum um allan heim og samið kvikmyndatónlist. Árið 2019 hlaut hún hin virtu Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs, þar sem dómnefndin lýsti henni sem „mikla sérstöðu sem flytjandi og nærvera hennar á sviði er bæði heillandi og einstök – óræð en jafnframt kraftmikil.“
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til að upplifa heillandi og djúpan tónlistarheim Gyðu Valtýsdóttur í lifandi flutningi.
////////
Join acclaimed composer and multi-instrumentalist Gyða Valtýsdóttir for an extraordinary concert in the Norðurljós recital hall at Harpa, alongside a group of renowned musicians.
Gyða Valtýsdóttir ・cello & vocals
Daníel Friðrik Böðvarsson ・guitar
Kjartan Sveinsson・piano
Ólafur Björn Ólafsson・drums/percussion
Skúli Sverrisson ・bass
Úlfur Hansson・synthesizer
Frank Aarnink og Júlía Mogensen・crystal glasses
Kliður choir・vocals
In this unique performance, Gyða weaves together ancient and contemporary influences. Her captivating arrangements bring the music of visionary composers like the 12th-century mystic Hildegard von Bingen into conversation with the striking sonic landscapes of modern musicians such as Skúli Sverrisson, Daníel Bjarnason, Kjartan Sveinsson, and Ólöf Arnalds, all of whom contributed to her critically acclaimed album Epicycle II.
The album’s title, Epicycle, is inspired by Ptolemaic cosmology, a fitting metaphor for Gyða's music, which unfolds like an expansive universe brimming with emotional depth. A founding member of the experimental band múm, Gyða’s career has spanned collaborations across artistic disciplines, performances on stages worldwide, and scoring for film. In 2019, she was honored with the prestigious Nordic Council Music Prize, with the jury praising her as “a singular artist with an extraordinary, earthy presence in live performance—a presence that is fragile and subtle, yet powerful and temperamental.”
Don't miss this rare opportunity to experience the evocative, immersive world of Gyða Valtýsdóttir live.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets