Advertisement
Gusumeistara námshelgi þar sem þú kynnist töfraheimi gusuiðjunar og lærir mikilvægan grunn til að leiða Góða Gusu 🧡🔥🧡3ja daga og Sjóðheit lærdómsrík og endurnærandi helgi 🌱🔥🌱
Dagur eitt 🧡
Byrjað er á upphitun í ljúfri gusu kl. 20 í dásemdar eldiviðskyndaðri sánunni Sækot við Ægisíðu í góðri gusu upphitun fyrir lærdómsríka og endurnærandi helgi 💥
Dagur tvö 🧡🧡
9 til 15 Bóklegi hlutinn í Exeter á Tryggvagötu
15 til 16 handklæða- og viftutæknin æfð
16 til 20 Verklegar æfingar í rafmagnskyndaðri sánu
Námsefni og Hádegismatur innifalinn , kaffi og með því yfir daginn 🍃☕️🥐
Dagur þrjú 🧡🧡🧡
Frá klukkan 10 til 19 í Sækoti ☀️
Mikilvæg samantekt og nemendur leiða sjálfstætt lotur og fá afhent diplóma ✅
Allt er þegar þrennt er og þess vegna varir námskeiðið í þrjá daga 💚💚💚 samtals 20 tíma ferðalag sem gefur þér mikilvægt verkefni í Gusuferðalaginu þínu og mikilvægum fræjum er plantað með góðum grunni er betur byggt 🌿🌿🌿
Námskeiðagjaldið er 59.900.- innifalið námsefni, kennsla og á Laugardeginum hádegismatur, kaffi og með því yfir daginn 🍃☕️🥐
Í bóklega verður farið yfir :
🔥Sögu sánunar
🔥Sánufræði
🔥Gusa - öðruvísi Sánaupplifun
🔥Gusa sem íþróttatengd iðja
🔥Góð Gusu sána, hvað ber að hafa í huga
🔥Uppbygging á Gusutíma
🔥Þema Gusumeistarans
🔥Munurinn á Klassískri gusu, jurta gusu , show gusa ofl.
🔥Kæling í bland við hita - jákvæðu áhrifin
🔥Andlegi og líkamlegi ávinningurinn
🔥Núvitund og 0 stilling
🔥Vitundavakningin á reglulegri Sánuiðkun
🔥Hiti, kuldi, tónlist, ilmur og samvera sem þerapía
Ilmkjarnaolíur,reykelsi og jurtir
🔥Almenn öryggisatriði
🔥Þátttöka Íslands á Gúsmeistara heimsmeistarakeppni 2025 👉🏻 https://aufguss-wm.com/
🔥Æfing í handklæða og viftutækni 🔥💦💥
Afhverju er handklæðið verkfæri gusumeistarans ?
Gusumeistarakennarinn er ;
Kennarinn Vala Baldursdóttir hefur starfað við að leiða gusur frá 2020 - sér og öðrum til mikillar heilsubótar 🔥
2024 þróaði Vala Gusumeistaranámið sem byggt er á danskri fyrirmynd með góðri íslenskri viðbót og gususérstöðunni hérlendis 🇮🇸
Fyrir ári opnaði Vala sánuna Sækot við Ægisíðu, stór hluti námsins fer fram þar 🏠 www.saekot.is
Gusuferðalag Völu hófst 2020 byrjaði í Havnsø Havnbad 🇩🇰 https://www.facebook.com/groups/391246455016552 og lærði svo snildina hjá þáverandi Danmörkumeistara í Saunagus, Thomas Fuglesang og kom með kunnáttuna heim til Íslands 2021 🌱
2021 til 2024 tók hið góða Fargufu Ferðalag við https://fargufa.is/ 🇮🇸
Með hléi frá Fargufunni 2022 dvaldi Vala í 10 mánuði á Grænlandi og stofnaði Arctic saunagus í Sisimiut 🇬🇱 https://www.facebook.com/Arcticspa
Hefur sánan í Sisimiut verið stækkuð, til að geta sinnt eftirspurn 🇬🇱
Grænland eins og Ísland eru með kjöraðstæður fyrir Gusu-iðkun 🔥Vegna hins náttúrulega kulda sem er stór partur af Gusu upplifuninni 🤍❄️🤍
Það hefur öflugur hópur sótt Gusumeistaranámskeiðin sem haldin hafa verið , fleirri starfa við að gusa og nokkrarar sánur búnar að bætast í flóruna 🌸 aðrir eiga þessa kunnáttu í verkfærakistu sinni 🍃
Gusu sánur sem hafa bæst í flóruna nýlega eru ;
Sauna.sessh 🔥
Litla Sauna húsið 🔥
Sána Sæla 🔥
Sánuvagn Mæju 🔥
Vestfjarðagusan 🔥
Sauna hofið 🔥
Herjólfsgufan 🔥
Kría fargufa 🔥
Völva Sánugusa 🔥
Sjóbaðstofan “Saman” 🔥
Skeiðalaig í umsjón Flothettunar 🩵
María á Kambi 🔥
Saunasetrið á Hvammstanga 🔥
Og fleirri hafa bæst við 🧡🧡🧡🧡🧡
Gusuhringkort er í bígerð 🌱
Það hefur verið stofnað Gusumeistarafélag fyrir þennan nýja atvinnuvetvang sem er að skapast. Það verður farið yfir tilganginn á námskeiði og afhverju félag er mikilvægt 🌱
Námið hefur verið viðurkennt sem starfstengt nám og íþrótta/tómstundatengt hjá sumum Stéttafélögum 🪇
Sem hafa endurgreitt námskeið að fullu sem starfstengt nám og önnur að hluta sem tómstund 🥁🪇
Skráning í skilaboðum 📬😊
Advertisement
Event Venue
Ægisíða - Grímstaðavör, 107 Reykjavík, Iceland, Ægisíða 107, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











